Isavia.is - Hlutverk og markmið

Um Isavia

Hlutverk
Hlutverk Isavia er að annast rekstur og uppbyggingu allra flugvalla og lendingarstaða á Íslandi. Einnig annast Isavia alla flugleiðsöguþjónustu sem Ísland veitir fyrir alþjóðlegt flug og innanlandsflug.

Stefnumið
Við viljum tryggja að flugöryggi sé í samræmi við viðurkenndar öryggiskröfur og aðferðir, að flugvernd sé fullnægjandi og að starfsemi félagsins njóti viðurkenningar á innlendum sem alþjóðlegum vettvangi. Við styðjum við almenna flugstarfsemi á Íslandi og stuðlum að því að flugstarfsemi dafni hér á landi í sátt við samfélagið með sérstakri áherslu á umhverfismál. Við viljum efla þekkingu og færni starfsmanna okkar og leggjum á það áherslu að skapa þeim gott starfsumhverfi. Isavia styður og eflir starfsemi í samfélaginu, sem er mikilvæg vegna kjarnastarfsemi félagsins eða er því til vegsauka.

Mannauður
Hjá Isavia starfa  um 550 manns. Hjá Isavia og dótturfyrirtækjum Isavia starfa um 700 manns.Lögð er áhersla á að fyrirtækið hafi jafnan á að skipa hæfu starfsliði með góða menntun og reynslu. Stuðlað verði að frekari menntun og þjálfun starfsmanna ásamt því að efla góðan starfsanda og liðsheild.

Opnunartími afgreiðslu Isavia í flugturni og í flugstjórnarmiðstöðinni í Reykjavík er frá 8:00 - 16:00.
Opnunartími afgreiðslunnar á Keflavíkurflugvelli er frá 8:00 - 16:00.

Heimilisfang Isavia ohf. er:
Reykjavíkurflugvöllur
101 Reykjavík

Heimilisfang Keflavíkurflugvallar
Flugstöð Leifs Eiríkssonar
235 Keflavíkurflugvöllur
 
Kennitala Isavia ohf. er: 550210-0370

Isavia ohf.  ·  Reykjavíkurflugvelli  ·  Sími +354 424 4000  ·  Fax +354 424 4001  ·  Almennur fyrirvari  ·  Hafðu samband