Almennur fyrirvari
Isavia ohf. eiga höfundarrétt að öllum þeim upplýsingum sem fram koma á vefnum, nema annað sé sérstaklega tekið fram.
Leitast er við að hafa upplýsingar á vef Isavia réttar. Isavia bera þó hvorki ábyrgð á tjóni sem rekja má beint eða óbeint til notkunar á vef Isavia né tjóni sem rekja má til þess að ekki er hægt að nota vefinn, um skemmri eða lengri tíma.
Efni á heimasíðunni er háð höfundarrétti og ber að vitna í hvaðan upplýsingarnar eru fengnar. Engin ábyrgð er tekin á vefsíðum annarra sem vísað er til.
Isavia vilja undirstrika eftirfarandi vegna opinberrar birtingar á veðurupplýsingum frá flugvöllum sem eru á heimasíðu Isavia: Veðurgögn á heimasíðu Isavia eru eingöngu ætluð sem ítarefni við þær veðurupplýsingar sem gefnar eru út frá tilgreindum flugvöllum, eins og METAR og SPECI, en koma alls ekki í staðinn fyrir þær. Athuga ber að öll veðurgögn á heimasíðunni eru óyfirfarin rauntímagögn og ábyrgjast Isavia ekki að þau séu ávallt aðgengileg og uppfærð.Mæligildi eiga að uppfærast sjálfvirkt á tveggja mínútna fresti.
Veðurathuganir úr veðurstöðvum eiga að uppfærast sjálfvirkt á hálftíma fresti. Aukalegar sjálfvirkar veðurathuganir birtast við skyndileg veðrabrigði sem fara yfir ákveðin mörk.
