Isavia.is - Hlutverk og markmið

Almennt

Flugmálahandbókin og Notam
Hér má finna helstu flugupplýsingar eða lýsingu á þeim. Þar á meðal er lýsing á uppbyggingu og innihaldi AIP Ísland, svo og öll gildandi supplement, AIC bréf og NOTAM skeyti.

Veðurathuganir
Isavia hafa umsjón með veðurathugunum á flestum flugvöllum landsins.  Starfsmenn Isavia eða skilgreindir undirverktakar, sjá um þessa þjónustu sem felst ýmist í gerð og dreifingu reglulegra veðurskeyta, eða veðurupplýsingum samkvæmt beiðni.

FDPS
FDPS er skammstöfun fyrir Flight Data Processing System eða fluggagnakerfi. Þetta er mjög flókið kerfi, sem tekur við nánast öllum gögnum um ferðir flugvéla, sem berast flugstjórnarmiðstöðinni, öðrum en ratsjárgögnum. Kerfið tekur við mörgum af þeim verkefnum sem flugumferðarstjórar og aðstoðarmenn þeirra þurftu áður að vinna með handvirkum hætti. Til dæmis vinnur það úr öllum flugáætlunum og uppfærir staðsetningu flugvéla í samræmi við stöðuskeyti, sem berast frá flugvélum á leið þeirra yfir hafið.

Gervihnattaleiðsögukerfi (GNSS)
Upplýsingar um GPS, Galileo, GLONASS, EGNOS og fleira.

Flugslysaæfingar
Isavia hefur umsjón með framkvæmd flugslysaæfinga en þær eru haldnar reglulega á innlendum áætlunarflugvöllum Slysin gera ekki boð á undan sér og því er nauðsynlegt að æfa viðbrögð við slíkri vá. Það er gert með því að setja á svið raunverulegt slys og samhæfa viðbrögð við því.  Flugslysaæfingar fara að jafnaði fram á vorin og að hausti.   Eftir hverja flugslysaæfngu eru gerðar flugslysaáætlanir sem farið er eftir er óhapp kemur upp á viðkomandi flugvelli. 

Isavia ohf.  ·  Reykjavíkurflugvelli  ·  Sími +354 424 4000  ·  Fax +354 424 4001  ·  Almennur fyrirvari  ·  Hafðu samband