Isavia.is - Hlutverk og markmið

Flugvellir á Íslandi

Rekstur og uppbygging íslenskra flugvalla
Rekstur íslenskra flugvalla felur í sér margþætta starfsemi til að tryggja að flugbrautir, flughlöð, flugstöðvar og allur búnaður flugvallanna séu í fullkomnu lagi; öryggismál, innra eftirlit, hönnun og framkvæmdir á ýmsum sviðum auk flugleiðsögu eru stór hluti þeirrar starfsemi.

Stærsti flugvöllurinn sem Isavia rekur er Keflavíkurflugvöllur sem er miðstöð millilandaflugs og svo Reykjavíkurflugvöllur sem er miðstöð innanlandsflugs á Íslandi.  Keflavíkurflugvöllur er búinn fullkomnum tækjum og þjónar öllum flugvélategundum. Þjónusta í flugstöðinni er framúrskarandi að mati alþjóðasamtaka flugvallarrekenda – Airports Council International – samkvæmt könnun sem samtökin gerðu meðal flugfarþega í mars 2008. Flugstöðin er rómuð fyrir þægilega staðsetningu í miðju Atlantshafi og lenti í fyrsta sæti fyrir þægindi við að skipta um flug sem og aðgengi að verslunum og bankaþjónustu, í þriðja sæti fyrir öryggi og var almennt valin fimmta besta flugstöð í heimi í flokki flugstöðva með færri en 5 milljónir farþega.

Alþjóðlegar kröfur
Undanfarin ár hafa alþjóðlegar kröfur til flugverndar- og viðbúnaðarmála á flugvöllum aukist umtalsvert. Aðgengiskröfur að flugvöllum hafa verið hertar til muna og miklar breytingar hafa verið gerðar á öryggis-, flugverndar-, slökkvi, björgunar-, og neyðarviðbúnaðarmálum íslenskra flugvalla.

Umsjón með öryggismálum er unnin innan flugverndar- og björgunardeildar og eru neyðarviðbúnaðarmál tryggð með viðeigandi þjálfun, ítarlegri samhæfingu og gerð áætlana á því sviði bæði hvað varðar flugvelli landsins og flug yfir landinu.

Isavia starfrækir gæða- og öryggisstjórnunarkerfi og tryggir með því gæði og öryggi  flugvalla- og flugleiðsöguþjónustunnar.

Flugvellir á Íslandi eru flokkaðir í sex flokka og fer flokkunin eftir ýmsum atriðum eins og aðflugstæki, ljósabúnað, snjóruðningsgetu, tækjbúnað, öryggismál og margt annað.  Þjónustutímar flugvalla á Íslandi er hægt að nálgast í flugmálahandbókinni.

Áætlunarflugvellir innanlands eru:

Umdæmi 1 Umdæmi II Umdæmi III Umdæmi IV
Reykjavík Ísafjörður Akureyri Egilsstaðir 
Vestmannaeyjar Þingeyri Sauðárkrókur Hornafjörður
Bakki  Gjögur Grímsey Vopnafjörður
  Bíldudalur  Þórshöfn  

Flugbrautir með bundnu slitlagi:

UMDÆMI l UMDÆMI II UMDÆMI III UMDÆMI IV
Rif Patreksfjörður Húsavík  
Stóri - Kroppur  

Siglufjörður

 
    Reykjahlíð  

Flugbrautir með malarslitlagi:

UMDÆMI l UMDÆMI II UMDÆMI III UMDÆMI IV
Búðardalur Arngerðareyri Blönduós Borgarfjörður eystri
Flúðir Hólmavík Grímsstaðir Breiðdalsvík
Húsafell Reykhólar Herðubreiðalindir Djúpivogur
Hveravellir Reykjanes Kópasker Fagurhólsmýri
Kerlingafjöll   Melgerðismelar Norðfjörður
Kirkjubæjarklaustur   Raufarhöfn  
Þórsmörk    
Nýji Dalur      
Sandskeið      
Skálavatn      
Skógarsandur      
Sprengisandur      
Stykkishólmur      
Vík      


Flugbrautir með grasyfirborði:

UMDÆMI l
Hella
Kaldármelar

 

Isavia ohf.  ·  Reykjavíkurflugvelli  ·  Sími +354 424 4000  ·  Fax +354 424 4001  ·  Almennur fyrirvari  ·  Hafðu samband