Flugfarþegar
Árið 2006 tóku í gildi nýjar reglur varðandi innihald og magn vökva sem farþegar mega hafa með sér í flug. Þessar hertu reglur takmarka það sem farþegum er heimilt að bera með sér í handfarangri inn fyrir öryggishlið. Reglurnar tóku gildi innan Evrópubandalagsins og EFTA-ríkjanna (Íslands, Noregs, Liechtenstein og Sviss) á sama degi eða þann 6. nóvember 2006. Gildandi reglur um flutning vökva í lestarfarangri í flugvélum haldast óbreyttar.
Reglur þessar gilda um allt millilandaflug til og frá Íslandi og um öll flug innan Evrópusambandalagsins og EFTA ríkjanna. Innanlandsflug á Íslandi er undanþegið. Upplýsingabæklingur liggur frammi á Keflavíkurflugvelli, Egilstaðarflugvelli, Akureyrarflugvelli og helstu ferðaskrifstofum.
Stærð handfarangurs
Reglur sem takmarka stærð handfarangurs sem farþegar mega taka með sér í flug tóku gildi 6. maí 2007.
Þess ber að geta að flugrekendur geta takmarkað stærð farangurs frekar.
Ýmsar upplýsingar til farþega
Ýmsar aðrar upplýsingar er gott að kynna sér áður en farið er í flug, t.d.hvaða hluti er bannað að hafa með sér í handfarangri.
Á heimasíðu Flugmálastjórnar Íslands er hægt að nálgast allar upplýsingar er varða rétt flugfarþega.
Keflavíkurflugvöllur
Ef farangur skilar sér ekki á áfangastað skal leita til Tapað/Fundið hjá IGS Flugþjónustu sem þjónustar Icelandair,SAS og QS eða til Tapað/Fundið hjá Airport Associates sem þjónustar Iceland Express, Primera Air, Air Berlin, Germanwings og Fly Niki.
IGS Flugþjónusta
Sími: 425 0226
Tölvupóstfang: baggage@icelandair.is
Airport Associates
Sími: 425 0705
Tölvupóstfang: lf@airportassociates.com
Opið hjá Airport Associates frá kl. 08:00 til kl. 17:00 alla daga vikunnar.
Ef hlutir eða vörur týnast í brottfarasal/komusal þá er þeim skilað til Lögreglu í flugstöðinni.
Lögreglan á Keflavíkurflugvelli
Sími: 420 1808
Tölvupóstfang: lostandfound@dc.is
Opið hjá Lögreglunni alla virka daga frá kl. 09:00 til kl. 13:00.
Símsvörun alla virka daga frá kl. 09:00 til kl. 16:00.
