Isavia.is - Hlutverk og markmið

Nám hjá Isavia

Flugumferðarstjórn
Nemandi sem hefur nám í flugumferðarstjórn byrjar ávallt sinn námsferil á grunnnámskeiði í flugumferðarstjórn. Í ágúst 2008 var ákveðið að grunn- og áritananám í flugumferðarstjórnun fari inn í almenna skólakerfið.  Þessir skólar eru Flugskóli Íslands/Fjöltækniskólinn og Keili.

Isavia munu eftir sem áður vera með framhaldsnám til starfsréttinda í flugumferðarstjórn.  Nemendur til framhaldsnáms verða framvegis valdir úr hópi þeirra sem ljúka grunnnámi í almenna skólakerfinu.  Starfsréttindanám fer að miklu leyti fram í flugstjórnarmiðstöð og flugturnum og takmarkar það fjölda nema sem Isavia geta tekið í nám hverju sinni.  Fjöldi nema í réttindanámi hjá Isavia miðast við þarfir fyrirtækisins. 
Meira hér.
 
Fluggagnafræðingur
Fluggagnafræðingar starfa í flugstjórnarmiðstöðinni í Reykjavík. Starfsvið þeirra er í meginatriðum þríþætt, fluggagnavinnsla, fjarritun og upplýsingamiðlun. Unnið er í vaktavinnu og vinna fluggagnafræðingar í nánum tengslum við flugumferðarstjórn.

Inntökuskilyrði: Stúdentspróf, eða sambærileg menntun staðfest af menntamálaráðuneytinu.

Starfsþjálfun:  Þjálfun fluggagnafræðinga hefst á 3ja vikna bóklegu námskeiði. Þá tekur við starfsþjálfun á vöktum með starfsþjálfara sem tekur u.þ.b. 6-8 vikur. Starfsþjálfuninni lýkur með verklegu prófi í vinnustöðu. Að starfsþjálfun lokinni bætist við System Operator þjálfun fyrir FDPS, sem tekur u.þ.b. 4-5 vikur. Fluggagnafræðingar fá greidd laun frá upphafi starfsþjálfunar samkvæmt kjarasamningi Félags Flugmálastarfsmanna Ríkisins.

Námskeið starfsþjálfara
Námskeið starfsþjálfara eru haldin reglulega fyrir flugumferðarstjóra sem hafa a.m.k. 2ja ára starfsreynslu. Námskeiðin taka 2 vikur og eru kenndar grunnhugmyndir og kenningar í verklegri þjálfun þar sem einn kennari er á hvern nema. Framhaldsnámskeið starfsþjálfara eru haldin a.m.k. á tveggja ára fresti. Þar er auk upprifjunar á grunnnámskeiði m.a. kennd viðtalstækni og hvernig á að taka á viðkvæmum málum og/eða vandamálum sem komið geta upp í starfsnámi. Framhaldsnámskeið taka 2-4 daga.

Flugvallavörður / Flugradíómaður
Flugvallaverðir og flugradíómenn starfa á óstjórnuðum flugvöllum landsins.
Þjálfunardeild Isavia sér um námskeið Flugvallavarða og flugradiómanna að beiðni flugvalladeildar Isavia. Námskeiðin taka 3 vikur sem er í bland bókleg og verkleg þjálfun.

Fyrirspurnir

Allar fyrirspurnir um nám og næstu námskeið hjá Þjálfunardeild Isavia skulu berast til Ingibjargar Bergþórsdóttur.  Hægt er að komast í samband við Ingibjörgu í síma 424 4178 og með tölvupósti á ingibjorg.bergthorsdottir@isavia.is

Tekið er við fyrirspurnum virka daga frá kl. 10:00 til kl. 16:00.

Isavia ohf.  ·  Reykjavíkurflugvelli  ·  Sími +354 424 4000  ·  Fax +354 424 4001  ·  Almennur fyrirvari  ·  Hafðu samband