Hoppa yfir valmynd
30.6.2015
Ásgeir Pálsson endurkjörinn formaður skipulagsnefndar ICAO fyrir Norður Atlantshaf

Ásgeir Pálsson endurkjörinn formaður skipulagsnefndar ICAO fyrir Norður Atlantshaf

Á fundi ICAO (Alþjóðaflugmálastofnunarinnar) í París í síðustu viku var Ásgeir Pálsson, framkvæmdastjóri flugleiðsögusviðs Isavia endurkjörinn formaður NATSPG (North Atlantic Systems Planning Group) til næstu fjögurra ára. Ásgeir hefur verið formaður nefndarinnar lengur en nokkur forvera hans eða frá árinu 1997.

Hlutverk NATSPG er að annast eftirlit með gæðum flugleiðsöguþjónustu innan NAT svæðis ICAO, en það spannar loftrýmið yfir Atlantshafinu frá norðurpól að 45 gráðum norðlægrar breiddar. Einnig stjórnar NATSPG innleiðingu nýrrar tækni, vinnuaðferða og staðla.

Innan NATSPG starfa 13 sérfræðihópar sem fjalla um öryggi flugs, vinnuaðferðir og búnað í flugleiðsögukerfum og loftförum.

Aðildarlönd NATSPG eru Bandaríkin, Kanada, Ísland, Noregur, Danmörk, Stóra Bretland, Írland, Frakkland og Portúgal. Auk þeirra taka þátt fulltrúar frá IATA (alþjóðasamtökum flugfélaga), IBAC (alþjóðasamtökum flugrekenda einkavéla), IFALPA (alþjóðasamtök flugmanna), IFATCA (alþjóðasamtökum flugumferðastjóra) og INMARSAT (veitanda gervihnattaþjónustu).

Isavia annast rekstur og uppbyggingu allra flugvalla á Íslandi og stýrir jafnframt flugumferð í íslenska flugstjórnarsvæðinu sem er 5,4 milljónir ferkílómetrar að stærð og eitt það stærsta í heiminum. Eitt af hlutverkum Isavia er að tryggja að flugöryggi sé í samræmi við viðurkenndar alþjóðlegar öryggiskröfur og aðferðir. Það er því mikill heiður fyrir Isavia og starfsemi félagsins að Ásgeir hafi verið endurkjörinn formaður skipulagsnefndar ICAO fyrir Norður Atlantshaf.