Hoppa yfir valmynd
3.3.2016
Creative Take Off: Íslensk hönnunarverslun á Keflavíkurflugvelli í mars

Creative Take Off: Íslensk hönnunarverslun á Keflavíkurflugvelli í mars

Íslensk hönnun verður sett í öndvegi á Keflavíkurflugvelli í tilefni HönnunarMars en Isavia í samstarfi við Hönnunarmiðstöð Íslands býður íslenskum hönnuðum að selja hönnun sína á besta stað á verslunarsvæðinu 7.-22. mars. Auglýst var eftir umsóknum frá íslenskum hönnuðum og um 100 umsóknir bárust frá breiðum hópi hönnuða. Fulltrúar frá Hönnunarmiðstöð Íslands fóru yfir umsóknir og völdu 10 hönnuði sem munu selja vörur sínar í tímabundnu rými sem ber nafnið Creative Take Off. Gríðarleg gróska er í íslenskri hönnun þannig að valið var erfitt. Áhersla var lögð á að vörurnar endurspegli breidd og gæði íslenskrar hönnunar auk þess sem reynt var að gæta að innbyrðis jafnvægi. Í boði verða fjölbreyttar vörur sem gefa ferðamönnum tækifæri til að kynna sér gróskuna í íslenskri hönnun á HönnunarMars.

Hönnuðirnir sem urðu fyrir valinu að þessu sinni eru Milla Snorrason, Erling Jóhannesson, Helga Ósk Einarsdóttir, MAGNEA, As We Grow, Postulína, Ingibjörg Ósk Þorvaldsdóttir, Reykjavík Posters, hönnunarteymið IIIF og Guðrún Vald. Verk þeirra munu prýða sérstakt sölusvæði á besta stað í marsmánuði þar sem þúsundir ferðamanna fara um á degi hverjum.

Um Creative Take Off:

CREATIVE TAKE OFF er nýr vettvangur fyrir hönnuði til að koma verkum sínum á framfæri, staðsettur í brottfararsal Keflavíkurflugvallar. Okkur finnst að frábærar hugmyndir eigi að fá byr undir báða vængi og að þeir sem fara um flugstöðina á leið sinni til annarra landa geti gripið með sér íslenska hágæðahönnun og borið hróður listamannanna út fyrir landsteinana.