Hoppa yfir valmynd
10.9.2014
Ein stærsta flugvél sem lent hefur í Reykjavík

Ein stærsta flugvél sem lent hefur í Reykjavík

Flugvél bandaríska flughersins, af gerðinni Boeing C17 Globemaster, lenti á Reykjavíkurflugvelli í fyrrakvöld, en vélin er sú stærsta sem lent hefur á vellinum að undanskildum tveimur svipuðum vélum sem lentu á vellinum á sjötta áratugnum. Vélin lenti hér á landi til að taka eldsneyti á leið sinni frá herstöð flughersins í Þýskalandi til Anchorage í Alaska.
 
Upphaflega átti vélin að lenda í Keflavík en gat það ekki sökum lágrar skýjahæðar. Vélin lenti seint í fyrrakvöld og fór af landi brott seinni partinn í gær. Flugvél af þessari gerð var notast við þegar háhyrningurinn Keikó var fluttur til landsins á sínum tíma.
 
Lengd C17-vélarinnar er 53 metrar, vænghaf 51,75 metrar og stélhæð 16,8 metrar. Tóm er vélin um 128 tonn en hámarksþyngd við flugtak rúm 265 tonn.