Hoppa yfir valmynd
9.6.2016
Engin flugleiðsöguþjónusta á Reykjavíkurflugvelli frá 21-07

Engin flugleiðsöguþjónusta á Reykjavíkurflugvelli frá 21-07

Engin flugleiðsöguþjónusta verður í flugturninum á Reykjavíkurflugvelli frá 21 í kvöld, 9. júní til 07 í fyrramálið, 10. júní. Forföll eru á næturvakt í flugturninum og ekki hefur tekist að fá afleysingu. Vegna þessa verður ekkert flug um flugvöllinn yfir þetta tímabil. Notendum flugvallarins er bent á að nota Keflavíkurflugvöll.