Hoppa yfir valmynd
15.10.2015
Fjórmilljónasti farþegi ársins leystur út með gjöfum

Fjórmilljónasti farþegi ársins leystur út með gjöfum

Í dag náði fjöldi farþega um Keflavíkurflugvöll í fyrsta sinn yfir fjögurra milljóna múrinn innan sama árs. Fjórmilljónasti farþeginn var Rene Petersen en hann ferðaðist með fjölskyldu sinni til Kaupmannahafnar með Icelandair. Starfsfólk Isavia á Keflavíkurflugvelli kom Rene á óvart og tók á móti honum með blómvendi og leysti hann út með glæsilegum gjöfum.  Fékk hann lúxusmálsverð  á veitingastaðnum Nord fyrir alla fjölskylduna, glæsilegan gjafapoka úr Fríhöfninni auk þess sem Icelandair bauð honum að uppfæra sig á Comfort Class farrýmið.

Talning farþega um Keflavíkurflugvöll skiptist í brottfararfarþega, komufarþega og skiptifarþega og skiptist fjöldinn um það bil jafnt í þrennt. Þegar fjórmilljónasti farþeginn fór úr landi skiptist farþegafjöldinn svona: 1.392.597 brottfararfarþegar, 1.381.395 komufarþegar og 1.226.008 skiptifarþegar. Árið 2014 fóru 3,87 milljónir farþega um Keflavíkurflugvöll og en í ár er búist við því að fjöldinn fari upp í um 4,8 milljónir sem er fjölgun upp á um það bil 26% á milli ára. Árið 2016 má búast við því að farþegafjöldi nái sex milljónum.