Hoppa yfir valmynd
7.8.2015
Flugumferð í Vestmannaeyjum gekk vel

Flugumferð í Vestmannaeyjum gekk vel

Flugumferð til og frá Vestmannaeyjaflugvelli um liðna Verslunarmannahelgi gekk vel fyrir sig.  Í heildina voru um 430 flughreyfingar um helgina sem er dálítið minni umferð en síðastliðin ár. Nokkur umferð var seinnipart föstudags og á sunnudagskvöldið, langmest flugumferð var þó, líkt og fyrri ár, á mánudeginum.
 
Heilt yfir gekk flugumferðin vel fyrir sig. Með nýju fyrirkomulagi um úthlutun þjónustutíma var tryggt að umferð í loftrýminu yfir Vestmannaeyjum væri hæfileg á hverjum tíma með flugöryggi að leiðarljósi. Yfir 95% af þeim sem óskuðu eftir þjónustutíma á flugvellinum fengu tíma í samræmi við upphaflega ósk. Tæplega 5% þurftu að hnika til flugáætlunum sínum en þó ekki meira en sem nam hálfri til einni klukkustund. Alls var nýttur helmingur þeirra þjónustutíma sem í boði var. Isavia mun nú skoða vel hvernig þetta nýja fyrirkomulag gekk og hvort gera þurfi breytingar á því fyrir næstu Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. 
 
Öll umferð flugvéla og farþega á flughlaði gekk greiðlega fyrir sig um Verslunarmannahelgina og vilja starfsmenn Isavia á Vestmannaeyjaflugvelli þakka þeim sem heimsóttu flugvöllinn fyrir góða samvinnu.