Hoppa yfir valmynd
7.11.2014
Innanríkisráðherra og borgarstjóri tóku fyrstu skóflustungu að stækkum flugstjórnarmiðstöðvar

Innanríkisráðherra og borgarstjóri tóku fyrstu skóflustungu að stækkum flugstjórnarmiðstöðvar

Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri taka fyrstu skóflustunguna að viðbyggingu flugstjórnarmiðstöðvarinnar. Húsið verður stækkað um 2.800 fermetra mun koma sívaxandi starfsemi flugleiðsöguþjónustu Isavia undir eitt þak.

 

Flugstjórnarmiðstöðin í Reykjavík ásat fyrirhugaðri viðbyggingu.

Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri tóku fyrstu skóflustungu að stækkum flugstjórnarmiðstöðvarinnar í Reykjavík í dag, 7. nóvember. Úr flugstjórnarmiðstöðinni er stjórnað um þriðjungi allrar flugumferðar yfir Norður-Atlantshaf á 5,4 milljón ferkílómetra svæði sem nær allt norðurá Norðurpól. Umsvifin fara sívaxandi ár frá ári og stækkun húsnæðisins löngu orðið tímabær. Starfsemi alþjóðaflugþjónustu Isavia stendur á gömlum og traustum grunni. Hún hófst í gamla flugturninum á Reykjavíkurflugvelli og er nú á fjórum stöðum í borginni en með stækkuninni færist hún undir eitt þak.

 

 

Björn Óli Hauksson, Ásgeir Pálsson, Hanna Birna Kristjánsdóttir og Dagur B. Eggertsson að skóflustungu lokinni.

Síðasta ár flugu rúmlega 116 þúsund flugvélar samtals nærri 170 milljón kílómetra um íslenska flugstjórnarsvæðið. Þegar hafa á þessu ári 112 þúsund flugvélar farið um svæðið og stefnir í allt að 15% heildaraukning verði á árinu.

Stærstur hluti umferðarinnar er yfirflug sem Isavia sinnir samkvæmt samningi við Alþjóðaflugmálastofnunina. Hluti samningsins nær til flugleiðsöguþjónustu yfir Grænlandi og Færeyjum í góðu samstarfi við stjórnvöld í þessum nágrannaríkjum okkar. Brýnt er þó að vera á varðbergi gagnvart framtíð þjónustunnar sem viðurkennd er af notendum fyrir gæði og hagkvæmni.

Starfsemin er afar mikilvæg þjóðhagslega en þótt hún sé rekin á kostnaðargrunni skapar hún á þriðja hundrað vel launuð sérfræðistörf auk afleiddrar starfsemi og færir þjóðarbúinu nærri fjóra milljarða króna í hreinar gjaldeyristekjur árlega. 

Stækkun flugstjórnarmiðstöðvarinnar léttir ekki aðeins á starfseminni þar heldur gerir kleyft að  flytja flugfjarskiptadeild frá Sóleyjarrima ásamt starfsemi sem fer fram annarsstaðar í borginni í sama húsnæði. Kostnaður við framkvæmdina verður um einn milljarður króna sem dreifist á næstu tvö ár og greiðist af notendum. Aukið og bætt húsrými eflir flugstjórnarmiðstöðina og þjónustu við sívaxandi flugumferð yfir Norður-Atlantshaf.

Við skóflustunguathöfnina í dag óskaði innanríkisráðherra Isavia til hamingju með þennan mikilvæga áfanga og borgarstjóri kvað hann ekki síður mikilvægan en nýleg skóflustunga að lyfjafyrirtæki í Vatnsmýrinni sem tryggði að önnur verðmæt þekkingartengd starfsemi héldist í landinu. Ráðgert er að nýbyggingin verði tekin í notkun síðari hluta ársins 2016.