Hoppa yfir valmynd
5.12.2016
Isavia hefur gerst aðili að UN Global Compact

Isavia hefur gerst aðili að UN Global Compact

Isavia hefur gerst aðili UN Global Compact sem er alþjóðaverkefni á vegum Sameinuðu þjóðanna.  Með því gengur fyrirtækið í lið með yfir 9000 fyrirtækjum í 168 löndum sem eru nú þegar aðilar að verkefninu.
 
Með þátttöku skuldbindur Isavia sig til að stefna og starfshættir fyrirtækisins séu í samræmi við tíu grundvallarþætti Sameinuðu þjóðanna um mannréttindi, vinnumál, umhverfismál og aðgerðir gegn spillinu. Fyrirtækið skuldbindur sig jafnframt til að taka þátt í verkefnum sem styðja við þróunarmarkmið Sameinuðu þjóðanna og þá sérstaklega markmið til sjálfbærrar þróunar.
 
Isavia mun skila skýrslu til Sameinuðu þjóðanna árlega þar sem markmið og árangur hjá fyrirtækinu í þeim tíu flokkum sem um ræðir verða tilgreind.  Skýrslunni verður skilað í fyrsta skipti árið 2017.  
Nánari upplýsingar: https://www.unglobalcompact.org/