Hoppa yfir valmynd
9.6.2015
Isavia hlýtur gullmerki PwC í jafnlaunaúttekt

Isavia hlýtur gullmerki PwC í jafnlaunaúttekt

Sigurður Ólafsson framkvæmdastjóri mannauðs og árangurs, Róberta Maloney, deildarstjóri kjaramála, Elín Árnadóttir aðstoðarforstjóri, Hafsteinn Már Einarsson frá PwC, Björn Óli Hauksson forstjóri, Sóley Ragnarsdóttir mannauðsstjóri í Keflavík, Haukur Þór Arnarson jafnréttisfulltrúi.

 

Isavia hefur hlotið gullmerki jafnlaunaúttektar PwC. Vottunin staðfestir að launajafnrétti er hjá Isavia og munur innan við 3,5% á milli kynja. Niðurstaðan er í takt við jafnréttisáætlun félagsins sem hefur það að markmiði að nýta hæfni, krafta og kunnáttu starfsmanna til fulls án þess að kynbundin mismunun eigi sér stað. Isavia hefur lagt mikla áherslu á jöfn laun kvenna og karla og það að fá gullvottun í fyrstu tilraun sýnir að sú áhersla hefur skilað árangri. 

Jafnlaunaúttekt PwC greinir kynbundinn launamun innan fyrirtækja þegar tekið hefur verið tillit til annarra þátta sem hafa áhrif á laun, s.s. menntunar, starfsaldurs, starfaflokks og vinnustunda. Þannig veitir hún upplýsingar um raunverulegan launamun kynjanna hjá fyrirtækinu.

Björn Óli Hauksson forstjóri Isavia:

„Við erum mjög stolt af því að hafa fengið gullmerki PwC og það sýnir að áherslur okkar hvað varðar launajafnrétti hafa skilað sér. Við vonum að þessi viðurkenning verði hvatning til annarra fyrirtækja um að fylgja á eftir. Við vitum það að það getur tekið tíma að jafna launamun sé hann til staðar, en við vitum líka að vilji er það eina sem þarf.