Hoppa yfir valmynd
16.2.2015
Keflavíkurflugvöllur valinn besti flugvöllur í Evrópu 2014

Keflavíkurflugvöllur valinn besti flugvöllur í Evrópu 2014

 

Keflavíkurflugvöllur var valinn besti flugvöllur í Evrópu á síðastliðnu ári í viðamikilli þjónustukönnun meðal farþega sem framkvæmd er á öllum helstu flugvöllum um allan heim. 


Könnuninni er gerð á vegum alþjóðasamtaka flugvalla, Airports Council International, og svara farþegar spurningum ársfjórðungslega  um gæði fjölmargra þjónustuþátta. Flugvellir sem fá hæstu heildarniðurstöðu  ársins hljóta sérstaka viðurkenningu samtakanna. Þetta er í þriðja sinn sem Keflavíkurflugvöllur hefur hlotið slíka viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur. Árið 2009 var flugvöllurinn í efsta sæti í Evrópu og árið 2011 besti flugvöllur í Evrópu með færri en tvær milljónir farþega. Þá var flugvöllurinn valinn á heiðurslista samtakanna árið 2014 fyrir samfelldan árangur í þjónustukönnunum  frá árinu 2008.


Þjónustukönnunin mælir fjölmarga þætti sem snerta, t.d.  kurteisi og hjálpsemi starfsfólks, þægindi við tengiflug, notalegt andrúmslofti og hreinlæti. Einnig er spurt um ánægju með afgreiðslu farangurs, aðgengi að farangurskerrum, bankaþjónustu og veitingastaði svo eitthvað sé nefnt. Næst á eftir Keflavíkurflugvelli í flokki evrópskra flugvalla eru Sheremetyevo í Moskvu, Porto í Portúgal og Möltuflugvöllur.

Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia segist mjög stoltur og ánægður með árangurinn: „Starfsfólk okkar, annarra rekstraraðila, lögreglu og tollgæslu á Keflavíkurflugvelli hefur enn einu sinni sýnt að þar er veitt framúrskarandi þjónusta og það þótt ótrúleg farþegaaukning sé á flugvellinum. Við höfum áður náð þessum árangri og fengum auk þess sérstaka viðurkenningu í fyrra fyrir að hafa verið meðal fimm bestu flugvalla undanfarin ár. Það er sérstaklega ánægjulegt að viðhalda þessum frábæra árangri þrátt fyrir hið mikla álag á þessu stærsta ári í sögu flugvallarins.“ 
 

„Keflavíkurflugvöllur hóf fyrir nokkrum árum markvissa áætlun um að byggja upp orðspor sem öflugur flugvöllur með áherslu á gæði og þjónustu við farþega í fyrirrúmi. Endurtekinn árangur flugvallarins í þjónustukönnunum ACI samfara gríðarlegri farþegaaukningu sýnir glögglega hvað starfsfólkið stendur sig vel í að ná þeim markmiðum sem það lagði upp með. Ég vil óska þeim til hamingju með þennan frábæra árangur“, sagði Oliver Jankovec framkvæmdastjóri Evrópuhluta alþjóðasamtaka flugvalla (ACI Europe).

Isavia leggur áherslu á að veita sífellt vaxandi ferðamannafjölda framúrskarandi þjónustu á Keflavíkurflugvelli. Stækkunarframkvæmdir sem hafnar eru við flugstöðina fela í sér  5.000 fermetra viðbót við suðurbyggingu flugstöðvarinnar og stækkun komusalar á jarðhæð norðurbyggingar. Einnig er unnið er að breytingum á verslunar- og veitingasvæði í brottfararsal á annarri hæð. Þá er unnið að gerð nýrrar þróunaráætlunar fyrir flugvallarsvæðið sem marka mun stefnu vegna frekari stækkunaráforma.