Hoppa yfir valmynd
4.1.2013
Metumferð um Keflavíkurflugvöll – Umtalsverðar framkvæmdir fyrirhugaðar

Metumferð um Keflavíkurflugvöll – Umtalsverðar framkvæmdir fyrirhugaðar

Árið 2012 var metár í farþegaumferð á Keflavíkurflugvelli. Alls fóru 2.380.214 flugfarþegar um flugvöllinn á árinu eða 12,7% fleiri en árið 2011. Útlit er fyrir að farþegum muni fjölga enn um nærri 10% á nýju ári. Framkvæmdir eru hafnar við endurbætur á Flugstöð Leifs Eiríkssonar til þess að auka afkastagetu og þægindi flugfarþega sem ávallt eru höfð að leiðarljósi, enda hefur Keflavíkurflugvöllur tvívegis á síðustu árum verið valinn besti flugvöllur í Evrópu.

Farþegar á leið til og frá landinu voru samtals 1.946.976 árið 2012 sem er 14,6% aukning frá árinu á undan og skiptifarþegar, sem hafa viðdvöl á flugvellinum á leið milli Evrópu og Ameríku, voru alls 433.238. Mikil farþegafjölgun undanfarin þrjú ár sýnir nýtt vaxtarskeið eftir samdrátt í kjölfar efnahagshrunsins árið 2008.

Isavia og aðrir og ferðaþjónustuaðilar halda uppi öflugu markaðsstarfi og landkynningu sem skiptir miklu máli. Icelandair hefur boðað 15% aukningu á nýju ári og ný flugfélög hafa komið inn á markaðinn. Breytingar urðu undir lok ársins með yfirtöku WOW Air, sem hóf starfsemi fyrr á árinu, á hluta af starfsemi Iceland Express. Flugfélögin easyJet og Norwegian hófu flug til landsins á nýliðnu ári og hafa bæði ákveðið að fljúga allt árið um kring en umtalsverður vöxtur hefur orðið yfir vetrarmánuðina sem fellur vel að markmiðum Isavia um bætta nýtingu flugvallarmannvirkja utan háannatíma.

Isavia hefur mætt mikilli farþegafjölgun undanfarin ár með markvisst auknum afköstum flugstöðvarinnar, t.d. með  fjölgun sjálfsinnritunarstöðva og breyttum afgreiðslusvæðum og biðsvæðum farþega til aukinna þæginda og skjótari afgreiðslu. Í vor er fyrirhugað að taka í notkun ný biðsvæði fyrir farþega, fjölga brottfararhliðum og umtalsverðar breytingar verða einnig gerðar innandyra í flugstöðinni. Má þar nefna stærra svæði fyrir verslunar- og veitingaþjónustu við brottfarahlið í suðurbyggingu, stækkun biðsvæða og verulega fjölgun sæta sem auka mun þægindi og hraða afgreiðslu farþega til og frá borði.

Fjárfesting í endurbótum sem hafnar voru síðastliðið haust og haldið verður áfram í vetur nemur vel á annan milljarð króna og áætlað er að um 100 manns fái vinnu við framkvæmdirnar. Fyrirhugað er að ljúka verkinu að mestu fyrir háannatíma í sumar.