Hoppa yfir valmynd
10.4.2014

Páskatilboð KEF Parking fyrir morgunhana – 50% afsláttur fyrir klukkan fimm

Bílastæðaþjónustan KEF Parking á Keflavíkurflugvelli býður flugfarþegum sem mæta fyrir klukkan 5:00 að morgni 50% afslátt af verði langtímabílastæða yfir páskana.

Sérstök ástæða er til að mæta fyrr í innritun en vegna framkvæmda við farangursflokkunarkerfi flugvallarins geta myndast langar biðraðir. Við hvetjum því flugfarþega til þess að nýta sér þetta tilboð, koma fyrr, komast hjá löngum röðum og fá helmingsafslátt af bílastæðaverði. Innritun í morgunflug hefst klukkan 4:30 á morgnana.

Afslátturinn gildir fyrir farþega sem fljúga frá landinu á tímabilinu 11.-21. apríl.

Verðskrá KEF Parking og afsláttarverð

Dagafjöldi

Venjulegt verð

Verð fyrir þá sem mæta fyrir klukkan 5:00 11.-21. apríl

1 dagur

800

400

2 dagar

1600

800

3 dagar

2400

1200

4 dagar

3200

1600

5 dagar

4000

2000

6 dagar

4800

2400

7 dagar

5600

2800

8 dagar

6200

3100

9 dagar

6800

3400

10 dagar

7400

3700

11 dagar

8000

4000

12 dagar

8600

4300

13 dagar

9200

4600

14 dagar

9800

4900