Hoppa yfir valmynd
7.10.2014
Þorgerður ráðin framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar

Þorgerður ráðin framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar

Þorgerður Þráinsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar, dótturfélags Isavia, úr hópi rúmlega eitt hundrað umsækjenda. Hún mun hefja störf hjá Fríhöfninni á næstu vikum.
 
Þorgerður hefur góða og víðtæka reynslu af stjórnun og smásölurekstri. Hún kemur til Fríhafnarinnar frá Lyfju hf. þar sem hún sat í framkvæmdastjórn í tíu ár, síðast sem forstöðumaður verslana- og markaðssviðs en þar á undan sem starfsmannastjóri. Hún starfaði áður m.a. sem ráðgjafi hjá IBM Business Consulting Services í mannauðsmálum og rannsóknum.
 
Þorgerður er með BA og Cand.Psych gráðu í sálfræði frá Háskóla Íslands og hefur jafnframt lokið PMD stjórnendanámi frá Opna háskólanum.
 
„Það eru spennandi verkefni framundan hjá Fríhöfninni. Ég hlakka til að takast á við þau og kynnast starfsfólkinu sem starfar hjá fyrirtækinu. Farþegum um Keflavíkurflugvöll hefur líka fjölgað mikið að undanförnu sem felur í sér bæði tækifæri og áskoranir fyrir Fríhöfnina“ segir Þorgerður.
 
Fríhöfnin er í hópi framúrskarandi fyrirtækja á Íslandi og hefur hlotið fjölda viðurkenninga síðastliðin ár, m.a. í starfsmenntamálum, fyrir að vera besta fríhöfnin í Evrópu og vera fjölskylduvænt fyrirtæki. Fríhöfnin rekur fimm verslanir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og þar starfa um 140 manns. Tekjur Fríhafnarinnar hafa vaxið jafnt og þétt undanfarin ár og hefur Fríhöfnin á síðastliðnum fjórum árum skilað nálægt 10 milljörðum króna til eigenda sinna.