Hoppa yfir valmynd
1.10.2016
Umfangsmikil flugslysaæfing á Reykjavíkurflugvelli - 20 ár frá fyrstu æfingunni

Umfangsmikil flugslysaæfing á Reykjavíkurflugvelli - 20 ár frá fyrstu æfingunni

Um 400 manns tóku þátt í umfangsmikilli flugslysaæfingu sem haldin var á Reykjavíkurflugvelli í dag. Flugslysaæfingar sem þessar eru haldnar á fjögurra ára fresti á hverjum áætlunarflugvelli á Íslandi og því eru haldnar um 3-4 flugslysaæfingar á landinu á ári hverju. Æfingarnar eru almannavarnaræfingar og eru mikilvægar heildarviðbúnaðarkerfi Íslands hvort sem um flugslys eða önnur hópslys er að ræða. Isavia heldur utan um skipulag æfinganna en þær eru samstarfsverkefni fjölda viðbragðsaðila. Að æfingunum koma meðal annars starfsmenn flugvallarins, lögregla, slökkvilið, sjúkraflutningaaðilar, starfsfólk sjúkrahúsa, almannavarnir, björgunarsveitir, Rauði krossinn, prestar, rannsóknaraðilar auk fjölda annarra. Fyrsta flugslysaæfingin var haldin á Reykjavíkurflugvelli fyrir 20 árum síðan, en um 45 æfingar hafa verið haldnar um allt land frá árinu 1996.

Æfingin í dag var sviðsett þannig að flugvél með 75 farþega um borð átti að hafa lent sunnan við austurenda austur-vestur flugbrautar og eldur kviknað. Vettvangurinn var gerður mjög raunverulegur en kveikt var í bílflökum til þess að líkja eftir hlutum úr flugvélarbúk, sjúklingar voru farðaðir og allt gert til þess að gera hann sem líkastan raunverulegu slysi. Æfingin gekk vel en að henni lokinni munu allir þættir hennar verða rýndir og farið yfir þau atriði sem mætti bæta.

Isavia vill þakka þeim fjölmörgu aðilum sem komu að æfingunni fyrir gott samstarf.