Hoppa yfir valmynd
20.3.2014
Vel sóttur kynningarfundur á forvali vegna aðstöðu til verslunar- og veitingareksturs á Keflavíkurflugvelli

Vel sóttur kynningarfundur á forvali vegna aðstöðu til verslunar- og veitingareksturs á Keflavíkurflugvelli

Hlynur Sigurðsson framkvæmdastjóri Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar kynnti gestum forvalið.

Isavia hélt í gær kynningarfund á forvali vegna aðstöðu til verslunar- og veitingareksturs í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í Hörpu. Forvalið hefur vakið mikla athygli innanlands og erlendis, og sóttu um 200 manns kynninguna frá um 100 rekstraraðilum.

Nýr samningstími rekstraraðila

Samningstími rekstraraðila í brottfarasal flugstöðvarinnar rennur út í árslok. Samhliða valið á rekstraraðilum verður ráðist í breytingar á brottfararsal flugstöðvarinnar og þjónustan endurskipulögð og er áætlað að henni ljúki vorið 2015.

Ný tækifæri með breyttri samsetningu farþega

Samsetning farþega á Keflavíkurflugvelli er að breytast með mikilli aukningu erlendra farþega. Íslendingar voru helstu viðskiptavinir verslana og þjónustufyrirtækja en hlutfallið hefur breyst með fjölgun erlendra ferðamanna. Erlendir farþegar voru 68% af heildarfjölda árið 2013 og er áætlað að hlutfallið aukist í um 75% árið 2020. Breytingin mun hafa mikil áhrif á tilhögun og vöruframboð í verslunum og veitingasölu.
 
Farþegafjöldi hefur líka vaxið hröðum skrefum að undanförnu og lögðu 2,8 milljónir farþega leið sína um flugvöllinn á síðasta ári, 15,6% fleiri en árið 2012 og spáð er 18% fjölgun á yfirstandandi ári Þá er áætlað að heildarfjöldi farþega verði orðinn rúmar 5 milljónir árið 2020.

Samstarf við alþjóðlega sérfræðinga

Isavia leitaði aðstoðar breska ráðgjafarfyrirtækisins Concession Planning sem er eitt virtasta fyrirtækið á sviði reksturs og skipulagningar smásölu á flugvöllum. Ráða hefur einnig verið leitað hjá breska hönnunarfyrirtækinu Portland um hönnun á útliti og þema nýja verslunarsvæðisins. Fyrirtækið er margverðlaunað fyrir verkefni á sviði smásölu og í ferðaiðnaði og hefur 20 ára reynslu af margskonar þjónustu við verslunarrekstur á flugvöllum.

Sérstaða landsins í fyrirrúmi

Á kynningarfundi verkefnisins í Hörpu kom fram að framboð verslana- og veitinga hefur mikil áhrif á ánægju farþega og heildarupplifun af flugvellinum og mun endurhönnun brottfarasvæðisins taka mið af háu hlutfalli erlendra ferðamanna.  Íslensk náttúra og menning verða í forgrunni til að gera ferð farþega eftirminnilega og öðruvísi en á öðrum flugvöllum. Lagt verður upp með sérstöðu landsins og  fjölbreytni með nýtísku þægindi og óspillt náttúruundur á næsta leyti. 

Áhersla á afbragðsþjónustu, góð kaup og hámarksafrakstur

Isavia leggur áherslu á að farþegar njóti afbragðsþjónustu og geti gert góð kaup í verslunum og veitingastöðum flugstöðvarinnar sem jafnframt skili hámarksafrakstri af starfseminni.

Forvalið nær eingöngu til sérverslana og veitingastaða en ekki vöruflokka Fríhafnarinnar sem áfram mun hafa með höndum sölu á hefðbundnum tollfrjálsum varningi á borð við áfengi, tóbak, sælgæti, ilm- og snyrtivörur og skyldar vörur. Sérverslanir munu annast sölu annarra vöruflokka í einstökum verslunareiningum eða stærri deildarskiptum einingum með „búð í búð“ tilhögun. Flæði farþega um brottfarasalinn verður breytt þannig að allir farþegar ganga í gegnum Fríhafnarverslunina og þaðan er síðan eitt flæði í gegnum salinn þar sem gestir geta notið þess að versla og neyta veitinga áður en haldið er út í heim.

Hér að neðan eru tvær myndir af ófullmótuðum hugmyndum um breytingar á brottfararsvæði flugstöðvarinnar.