Hoppa yfir valmynd
25.5.2015

Verkföllum hefur verið frestað um fimm sólarhringa – nýjar dagsetningar

Samið hefur verið um að fresta verkföllum sem fyrirhuguð eru um fimm sólarhringa. Ef af fyrirhuguðum verkföllum verður gætu þau haft áhrif á flugsamgöngur. Að neðan er nánari útlistun á tímasetningum og mögulegum áhrifum. Tekið skal fram að engar breytingar hafa verið gerðar á áætlunum flugfélaga og flugfélög láta farþega sína vita ef röskun verður á flugi. 

Yfirlit um möguleg áhrif áætlaðra verkfalla á flugsamgöngur:

  • Hópbifreiðafyrirtæki fara mögulega í verkfall frá kl 00:00 2. júní til 24:00 3. júní. Verkfallið gæti haft áhrif á rútuferðir til og frá Keflavíkurflugvelli. 
  • Frá 00:00 4. júní til 24:00 5. júní er áætlað verkfall hótelstarfsfólks. Við það mun þjónusta á hótelum mögulega skerðast.
  • Mögulegt verkfall starfsmanna flugafgreiðsluaðila er áætlað frá klukkan 00:00 5. júní til 24:00 6. júní. Starfsmenn flugafgreiðsluaðila sem þjónusta flugfélög á Keflavíkurflugvelli meðal annars við eldsneytisafgreiðslu, innritun og að hlaða farangri um borð í flugvélar. Verkfall þeirra myndi geta haft áhrif á flugsamgöngur. 
  • Mögulegt verkfall starfsmanna olíufélaga frá klukkan 00:00 9. júní til 24:00 10. júní getur haft áhrif á bæði innanlands- og millilandaflug. 
  • Ef ekki semst fyrir 11. júní gæti komið til allsherjarverkfalls hjá VR, Eflingu, Hlíf og VSFK. Ef af verður getur það haft áhrif á bæði innanlands- og millilandaflug.