Hoppa yfir valmynd

Umsvif starfseminnar

Tveir þættir hafa mest áhrif á umsvif Isavia, annars vegar fjöldi flughreyfinga og hins vegar fjöldi farþega. Tekjur Isavia á Keflavíkurflugvelli koma fyrst og fremst frá flugfélögum sem fljúga á flugvöllinn, leigutekjum af veitinga- og verslunarrýmum auk annarra tekna af leigu á aðstöðu. 

Í heildina hafa umsvif starfseminnar aukist frá fyrra ári. Á innanlandsflugvöllum dróst fjöldi innanlandsfarþega um 4,5% meðan fjöldi millilandafarþega á innanlandsflugvöllum jókst um 8%. Á Keflavíkurflugvelli jókst fjöldi farþega um 12% og umferð á íslenska flugstjórnarsvæðinu um 5,8% á árinu 2018.

Þrjú flugfélög héldu uppi áætlunarflugi innanlands, Air Iceland Connect, Flugfélagið Ernir og Norlandair. Önnur flugfélög sem nýttu þjónustu Isavia að staðaldri voru Mýflug, Circle Air, Atlantsflug og Norðurflug. Fyrirtækin Vesturflug/Blue West og Helo reka þyrluþjónustu á flugvöllum félagsins.


Air Iceland Connect flýgur frá Reykjavík til nokkurra staða á Grænlandi og Atlantic Airways flaug til Færeyja frá Reykjavíkurflugvelli framan af árinu þangað til þeir færðu flug sitt til Keflavíkurflugvallar. Þá eru Flugskóli Íslands og Flugfélagið Geirfugl með starfsemi á Reykjavíkurflugvelli. BIRK Flight Services, Reykjavik FBO og Air Iceland Connect annast flugafgreiðsluþjónustu á flugvellinum. 

Á Akureyrarflugvelli sinnir Norlandair reglulegu áætlunarflugi innanlands og áætlunar- og leiguflugi til Grænlands, auk þess sem ferðaskrifstofur á svæðinu bjóða upp á beinar ferðir frá Akureyri til nokkurra áfangastaða erlendis. Circle Air sinnir leigu- og útsýnisflugi frá Akureyri. Air Iceland Connect hefur flogið milli Akureyrar og Keflavíkurflugvallar í tengslum við helstu áfangastaði Icelandair í Evrópu og Norður-Ameríku frá febrúar 2017. Í febrúar 2018 tilkynnti flugfélagið að það hyggðist leggja niður flugleiðina frá og með sumri 2018 en þær áætlanir breyttust og hóf félagið aftur flug á flugleiðinni í október 2018. Þá er flugkennsla starfrækt á vegum Flugskóla Akureyrar. Air Iceland Connect og South Air annast flugafgreiðsluþjónustu á Akureyrarflugvelli. Akureyrarflugvöllur er miðstöð fyrir sjúkraflug landsins sem flugfélagið Mýflug hefur með höndum fyrir heilbrigðisráðuneytið.

Á Egilsstaðaflugvelli hefur Air Iceland Connect með höndum flugafgreiðsluþjónustu fyrir einkaflugvélar og leiguflugvélar. Ferðaskrifstofur hafa boðið upp á beint leiguflug frá Egilsstöðum til nokkurra erlendra áfangastaða.

 Icelandair
Icelandair
WOW air
WOW air
Air Iceland Connect
Air Iceland Connect
Ernir
Ernir
Norlandair
Norlandair

Á Reykjavíkurflugvelli eru tvær brautir, 1.567 og 1.230 metrar, á Akureyrarflugvelli ein 2.400 metra braut og á Egilsstaðaflugvelli ein braut sem er 2.000 metrar. Aðrir flugvellir og lendingarstaðir hafa 634 til 1.887 metra langar flugbrautir.

Stærstu viðskiptavinir flugleiðsöguþjónustu Isavia eru Icelandair, WOW Air, United Airlines, SAS, Lufthansa, British Airways, Air Canada, Delta, Emirates, Norwegian, Air Greenland, Qatar Airways og KLM . Þessi flugfélög fljúga flesta kílómetra innan íslenska flugstjórnarsvæðisins. Íslensku félögin eru stærstu notendur flugleiðsöguþjónustu á Keflavíkurflugvelli.

Sumarið 2018 flugu 30 flugfélög frá Keflavíkurflugvelli til yfir 100 áfangastaða. Tíu félög flugu allt árið um kring til og frá landinu: Icelandair, WOW air, easyJet, Wizz Air, British Airways, Norwegian, SAS, Delta, Lufthansa og Finnair. Tvö fraktflugfélög Icelandair Cargo og Bluebird fljúga frá Keflavíkurflugvelli árið um kring.

Þrír flugafgreiðsluaðilar starfa á Keflavíkurflugvelli: IGS, Airport Associates og South Air.

Fjölmargir farþegar nýta sér Keflavíkurflugvöll sem tengiflugvöll og bæði WOW air og Icelandair nýta flugvöllinn þannig á leið milli Evrópu og Norður Ameríku. Lágmarks tengitími farþega á Keflavíkurflugvelli eru 25 mínútur.

Isavia hefur með aðstoð hvatakerfis orðið allvel ágengt við að fá flugfélög til þess að fljúga til landsins að vetrinum. Félagið hefur einnig markaðssett afgreiðslutíma utan mestu álagstíma á hverjum sólarhringi með það að markmiðið að nýta betur aðstöðuna á flugvellinum.

Á Keflavíkurflugvelli eru tvær flugbrautir sem eru 3.054 og 3.065 metrar að lengd.

Lengsta flugbraut Keflavíkurflugvallar
m m
Lengsta flugbraut Reykjavíkurflugvallar
m m
Flugbraut Akureyrarflugvallar
m m
Flugbraut Egilsstaðaflugvallar
m m

Farþega- og umferðarspár

Isavia gerir umferðarspár a. m. k. einu sinni á ári fyrir kjarnastarfsemi félagsins, annars vegar fyrir farþegafjölda á innanlandsflugvöllum og Keflavíkurflugvelli og hins vegar umferð á íslenska flugstjórnarsvæðinu.

Farþegaspá fyrir innanlandsflugvelli er gerð í lok hvers árs. Byggist hún á upplýsingum frá stærstu notendum flugvallanna og er notuð í tengslum við rekstraráætlun og gerð gjaldskrár.

Umferð á íslenska flugstjórnarsvæðinu er metin í samræmi við upplýsingar frá vinnuhópi sem nefnist Economic Financial Forecasting Group (EFFG). Í hópnum eiga sæti allir þjónustuveitendur og fulltrúar samtaka notenda á Norður Atlantshafi og gerir hann spár um flugumferð yfir Norður-Atlantshafi.

Farþegaspá fyrir Keflavíkurflugvöll er gerð í lok hvers árs fyrir komandi ár og birt í nóvember. Vegna óvissu með einn af stærstu viðskiptavinum Keflavíkurflugvallar reyndist ekki unnt að birta farþegaspá fyrir árið 2019 í nóvember venju samkvæmt heldur var spáin birt í janúar síðastliðnum.

 Við vinnslu farþegaspár fyrir Keflavíkurflugvöll er stuðst við eftirfarandi aðferðafræði:

  • Samstarf — haft var samband við alla notendur Keflavíkurflugvallar til að fá upplýsingar um vænt sætaframboð eða væntann farþegafjölda.
  • Upplýsingaöflun — þekking og reynsla Isavia nýtt til umbóta á fyrstu drögum.
  • Staðreyndir — stuðst var við bókunarupplýsingar og upplýsingar úr flugupplýsingakerfum flugvallarins til að fínstilla spána.

Spáin er unnin á grundvelli upplýsinga um afgreiðslutíma sem flugfélög hafa tryggt sér í komandi sumar- og vetraráætlun. Mjög gott samstarf er við stærstu félögin um upplýsingar um sætaframboð. Isavia leggur áherslu á að deila upplýsingum sem félagið tekur saman með ferðaþjónustuaðilum, greiningaraðilum og almenningi og heldur til þess opna fundi.

Flugvellir eru mikilvægar viðskiptamiðstöðvar og stuðla beint og óbeint að efnahagslegu og samfélagslegu virði til þeirra samfélaga sem starfsemi þeirra snertir.

Virðissköpun

Isavia er fyrirtæki sem gegnir mikilvægu hlutverki bæði í efnahagslegu og samfélagslegu samhengi. Flugvellir Isavia, og þá sér í lagi Keflavíkurflugvöllur, skapa verðmæti fyrir bæði íslenska hagkerfið og það alþjóðlega. Beinar flugtengingar eru gríðarlega mikilvægar. Eftir því sem fleiri beinar tengingar eru í flugi frá Íslandi til helstu borga í heiminum því auðveldara verður fyrir íslensk fyrirtæki og einstaklinga að stunda viðskipti, flytja út vörur og leita sér þekkingar á erlendri grundu. Auk þess sem þær auka áhuga erlendra fyrirtækja á því að hefja starfsemi á Íslandi.

Flugvellir eru mikilvægar viðskiptamiðstöðvar og stuðla beint og óbeint að efnahagslegu og samfélagslegu virði til þeirra samfélaga sem starfsemi þeirra snertir. Í grennd við flugvelli njóta fyrirtæki og virðiskeðjur þeirra góðs af nálægðinni og stuðla beint og óbeint að jákvæðri efnahagslegri þróun fyrir þau svæði.

Isavia hefur, m.a. í vinnu við gerð þróunaráætlunar til 2040, skoðað möguleika á uppbyggingu á starfssvæði flugvallarins, sem kalla mætti flughafnarborg (Airport City). Miklir möguleikar felast í því að koma upp flughafnarborg. Það er vísun í svæði sem nær til flugvallarins, flugstöðvarinnar, fraktsvæða, skrifstofubygginga, verslunar og þjónustu og hótela. Þar gæti byggst upp starfsemi, bæði flugtengd og óflugtengd, sem nýtur góðs af því að vera staðsett við alþjóðlegan flugvöll með öflugar flugtengingar til að öðlast samkeppnislega sérstöðu. Skýr stefna í þá átt getur skilað auknum vöru- og þjónustuviðskiptum, laðað til landsins erlenda fjárfestingu í auknum mæli, fjölgað verðmætum störfum og aukið hagsæld íbúa landsins alls.

Alls 764 starfsmenn starfa á stærstu starfsstöð Isavia á Keflavíkurflugvelli. Þar að auki starfa hundruð starfsmanna hjá öðrum fyrirtækjum með starfsemi beint tengda flugvellinum. Um 239 fyrirtæki hafa langtímaaðgangsheimildirað Keflavíkurflugvelli. Um er að ræða fyrirtæki eða stofnanir með starfstöðvar á flugvellinum og þau fyrirtæki sem þjónusta þau.

Framlag Isavia til samfélagsins samanstendur af mörgum ólíkum þáttum, hluti þess sem Isavia skilar til samfélagsins er í formi skatta og opinberra gjalda sem samstæðan greiðir eða innheimtir, ásamt mótframlagi í lífeyrissjóði starfsfólks.

Skattaspor Isavia 2018 - 9.153 m.kr.

Skattaspor Isavia 2018
Staðgreiðsla starfsmanna 3829
Tekjuskattur 898
Áfengis- og tóbaksgjald 694
Fasteignagjöld 442
Aðrir skattar og gjöld 351
Mótframlag í lífeyrissjóði 1840
Tryggingagjald 1098

Beint efnahagslegt virði skapað og dreift

GRI 201-12018
Beint efnhagslegt virði skapað
Tekjur42.025 m.kr.
Beint efnhagslegt virði dreift
Rekstrarkostnaður11.403 m.kr
Laun og launatengd gjöld16.820 m.kr.
Vaxtagjöld og kostnaður1.173 m.kr.
Skattar3.623 m.kr.
Fjárfestingar6.045 m.kr.
Samfélagslegar fjárfestingar58 m.kr.
Efnahagslegt virði haldið eftir2.903 m.kr.
Meðalfjöldi starfa1430