Skip to main content

SAMFÉLAGSSJÓÐUR

Isavia vill leggja sitt af mörkum til metnaðarfulls starf á ýmsum sviðum samfélagsins. Félagið hefur átt samstarf við fjölda aðila og styrkt margvísleg samfélagsleg verkefni. Stefna sjóðsins er að styrkja verkefni sem hafa breiða samfélagslega skírskotun og möguleika á að hafa jákvæð áhrif á íslenskt samfélag, bæði á landsvísu sem og á starfssvæðum Isavia.

Tekið er á móti umsóknum allt árið en úthlutað er úr sjóðnum tvisvar á ári.

Samfélagsstyrkjunum er ætlað að styðja við verkefni á ýmsum sviðum. Verkefni sem koma einkum til greina eru:

  • Verkefni á sviði umhverfismála
  • Verkefni á vegum mannúðarsamtaka og líknarfélaga
  • Viðburðir og verkefni á sviði lista, menningar og mennta
  • Verkefni á sviði forvarna og æskulýðsstarfs
  • Flugtengd málefni.

Styrkir eru veittir til skilgreindra verkefna og atburða og skulu þeir ganga til einstaklinga, hópa, sjálfseignarstofnana og frjálsra félagasamtaka sem ekki eru rekin í hagnaðarskyni. Sjóðurinn veitir ekki rekstrarstyrki. Að jafnaði eru styrkir á bilinu 100 til 500 þúsund krónur

Sækja um styrk úr samfélagssjóði