Hoppa yfir valmynd
8.12.2017
Isavia hlaut hvatningarviðurkenningu í loftslagsmálum

Isavia hlaut hvatningarviðurkenningu í loftslagsmálum

 
Isavia hlaut í dag hvatningarviðurkenningu í loftslagsmálum frá Reykjavíkurborg og Festu. Loftslagsviðurkenningarnar voru veittar í fyrsta sinn í morgun. Telja borgin og Festa, miðstöð um samfélagsábyrgð fyrirtækja, að Isavia hafi sett sér metnaðarfull markmið í loftslagsmálum.
 
Milli áranna 2015 og 2016 hafi dregið úr heildarlosun Isavia á gróðurhúsalofttegundum um 49 tonn kolefnisígilda. Isavia sé þátttakandi í Airport Carbon Accreditation, kerfi á vegum Alþjóðasamtaka flugvalla.
 
Verkefnið skiptist alls í fjögur stig; kortlagningu kolefnisspors, markmiðasetningu og minnkun kolefnislosunar, minnkun kolefnislosunar í samstarfi við þriðja aðila (annarra rekstraraðila á flugvellinum) og lokastigið er kolefnisjöfnun flugvallarins. 
 
Isavia undirritaði loftslagsyfirlýsingu Festu og Reykjavíkurborgar, í aðdraganda loftslagsráðstefnunnar í París 2015 og hefur sett sér markmið í loftslagsmálum og birt þau.
 
Viðurkenningin var afhent við hátíðlega athöfn í Hörpu í morgun og það var Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia, sem tók við henni. Eftir afhendingu viðurkenninganna var María Kjartansdóttir, verkefnastjóri umhverfismála hjá Isavia, með kynningu á verkefnum og aðgerðum Isavia í loftslagsmálum.
 
Auk Isavia fékk vefurinn loftslag.is fræðslu- og upplýsingaviðurkenningu og HB Grandi loftslagsviðurkenningu Festa og Reykjavíkurborgar.