Útboð á ræstiþjónustu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar
Kynningarfundur vegna fyrirhugaðs útboðs á ræstiþjónustu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar verður haldinn í skrifstofum Isavia á Keflavíkurflugvelli á þriðju hæð flugstöðvarinnar, fimmtudaginn 16. mars kl. 13:00.
Útboðið byggir á ÍST INSTA 800:2010 gæðastaðlinum, sem inniheldur kerfi til að ákvarða, meta og stýra gæðum ræstinga.
Við hvetjum áhugasama þátttakendur í útboðinu til að mæta á fundinn.
Nánari upplýsingar í síma 425 6000 eða með tölvupósti á [email protected].