Hoppa yfir valmynd

Flugáætlun – Leiðbeiningar: LEIÐBEININGAR FYRIR VEFGÁTT CRONOS

Hér á síðunni má finna ýmsar leiðbeiningar fyrir vefgátt Cronos. Ef þú finnur ekki það sem þú leitar að þá má senda fyrirspurn á fpl@isavia.is.

Sjá leiðbeiningar fyrir flugmenn.

 

Innskráning

Breyting hefur orðið á innskráningu, í stað þess að velja „Password“ við fyrstu innskráningu skal velja „Enrollment“ sem er staðsett undir appelsínugulu hnöppunum.
Myndbandið verður uppfært fljótlega.

Flugáætlun í Cronos

Stutt flugáætlun í Cronos

Flugáætlun – Leiðbeiningar: Spurt og svarað

Við erum með umsóknarform á heimasíðunni sem fólk fyllir út. Við sendum svo viðkomandi notendaupplýsingar. ​Formið má finna hér: https://www.isavia.is/fyrirtaekid/c-forflugsupplysingar/flugaaetlun-icao

Athugið að umsóknir eru afgreiddar virka daga á skrifstofutíma.

Nei, ekkert gjald er tekið fyrir að stofna notanda og nota Cronos til að leggja inn flugáætlanir.

Já, það þurfa allir að búa sér til notanda þrátt fyrir að vera hluti af t.d. flugskóla eða flugklúbb.

Gert er ráð fyrir að flugáætlanir séu lagðar inn rafrænt. Hægt að leggja inn flugáætlun með AFTN, í gegnum vefgátt Cronos eða í gegnum ýmis öpp og forrit sem hönnuð eru til þess.

Öll öpp og forrit sem hafa þann eiginleika að geta sent frá sér flugáætlanir er vel hægt að nýta til þess að leggja inn rafræna flugáætlun.

Ef rafræna leiðin gengur ekki er hægt að leggja inn flugáætlun í gegnum síma 424-4242.

Fyrsta innskráning felur í sér að setja þarf upp snjallforrit (App) til þess að geta notað tvöfalda auðkenningu. Hægt er að sjá myndband um fyrstu innskráningu, skoða myndband.

Þegar því er lokið þá skráir notandi sig inn með því að fara á https://isavia.fpcportal.is/ velja „Mobile Authenticator“, slá inn notendanafn og lykilorð. Því næst þarf að slá inn 6 tölustafa kóða sem sóttur er í auðkenningarappið.

Á skrifstofutíma er best að senda póst á netfangið [email protected]. Ef erindið getur ekki beðið er hægt að hafa samband í síma 424-4242.

Já, það þarf alltaf að nota tvöfalda auðkenningu til að komast inn á Cronos vefgáttina. Innskráning er virk í allt að 12 klukkustundir á meðan vafri er opinn.

Sækja má appið bæði í AppStore og PlayStore

Já. En athugið að hægt er að leggja inn flugáætlanir fram í tímann, allt að 5 sólarhringa.

Athugið að viðbúnaðarþjónusta er aðeins tryggð (miðað við innlagðar upplýsingar flugáætlunar inn í Cronos vefgátt) eftir að þú hefur fengið staðfestingu á flugáætlun þinni með tölvupósti.
Einnig er hægt að sjá staðfestinguna í Cronos vefgáttinni en þá stendur Approved við flugáætlunina.

Nei, það skiptir ekki máli. Það getur þó verið gott að prófa að skipta um vafra ef þú átt í vandræðum með að skrá þig inn.

Ef þú átt í vandræðum með að skrá þig inn mælum með að þú byrjir á því að skipta um internetvafra (e. browser) (dæmi um browser: Chrome, Mozilla Firefox, Microsoft Edge). Einnig getur verið gott að gera clear cookies í vafra (dæmi: farið í Settings -> Clear browsing data -> haka í Cookies and other site data og ýta á Clear).

Ef ekkert af ofantöldu virkar skaltu senda tölvupóst á [email protected] eða leggja inn flugáætlun í gegnum síma 424-4242.

Fyrst um sinn verður einungis leyft að leggja inn VFR (V) og blönduð (Y/Z) FPL í gegnum Cronos vefgáttina.

Skráir þig inn í Cronos og velur FPL Office -> FPL Proposal -> Create í valmyndinni til vinstri.

Sjá hlekk með myndbandi til útskýringar.

Ganga þarf úr skugga um að allar villur hafi verið lagfærðar áður en flugáætlunin er send. Til þess að vera viss skal alltaf ýta á validate áður en ýtt er á submit.

Cronos sendir ekki flugáætlanir úr kerfinu fyrr en þær hafa verið lagfærðar. Villuskilaboð birtist í rauðum reit efst á síðunni og einnig birtist rauð lína og rauður texti undir þeim reitum sem þarf að lagfæra, athugið að fletta í gegnum allt planið (flipana) til að lagfæra villur.

Einnig þarf að ganga úr skugga um að Internettengingin sé í lagi, ekki er hægt að senda flugáætlun úr Cronos nema að vera tengdur interneti.

Ef ekkert af ofantöldu virkar skaltu senda tölvupóst á [email protected] eða leggja inn flugáætlun í gegnum síma 424-4242.

Sjá nánar í AIP Iceland, ENR 1.10. AIP er aðgengileg á https://eaip.isavia.is/

Símanúmerið skal fylla út undir RMK/ í Item 18 í flugáætluninni. Item 18 fyllir þú út í Equipment and capabilities flipanum. Þú skrifa: RMK/xxxxxxx (símanúmer), beint á línuna undir Item 18 eða með því að velja töfrasprotann, ýta á RMK/ hnappinn og fylla út símanúmer.

Þegar flugáætlun þín hefur verið samþykkt færðu tölvupóst* þar sem stendur: “FPL Proposal “xxxxx” has been approved”. Einnig er hægt að sjá staðfestinguna í Cronos vefgáttinni en þá stendur Approved við flugáætlunina.

Athygli er vakin á því að viðbúnaðarþjónustan er miðað við upplýsingarnar í flugáætluninni sem er inni í Cronos vefgátinni. Ef breytingar verða á t.d. flugtíma þarf að senda viðeigandi breytingarskeyti (CHG, DLA, CNL).

Ef flugáætluninni er hafnað færðu tölvupóst* þar sem stendur: “FPL Proposal “xxxxx” has been rejected” í tölvupóstinum kemur einnig fram ástæða höfnunar. Höfnun má einnig sjá í Cronos vefgáttinni en þá stendur Rejected við flugáætlunina. Þegar flugáætlun er hafnað er viðbúnaðarþjónusta ekki virkjuð.

Já, þegar þú fyllir út FPL í Cronos vefgátinni og ferð inn í Transmission information flipann er hægt að skilja eftir link á GPS track (t.d. Garmin GPS track) undir Optional (sjá nánari upplýsingar í leiðbeiningahefti). Athugið að slóðin þarf að vera í hástöfum (CAPSLOCK), annars kemur villuskilaboð á flugáætlunina í Cronos og ekki hægt að leggja hana inn.

Athugið að slóðin dreifist ekki með flugáætluninni en er aðgengileg starfsmönnum sem yfirfara flugáætlanir í Cronos.

Cronos veitir notendum upplýsingar í skilaboðaboxum sem birtast efst á skjánum. Rauð eru villur, gul eru viðvaranir og græn segja til um að allt sé í lagi.

Cronos stoppar notendur í að geta sent inn ófullkomnar flugáætlanir (samkvæmt ICAO forminu) og birtir villuskilaboð með því sem þarf að lagfæra. Þegar þú leggur inn flugáætlun í Cronos lokast villuskilaboðin ekki sjálfkrafa þegar þú gerir Valdidate. Nýjustu skilaboðin eru alltaf efst. Gott er að temja sig á að loka þeim strax svo þau valdi ekki ruglingi.

Já, þú getur skoðað allar gamlar flugáætlanir í Cronos. Þú velur FPL Office -> FPL Proposal -> Query og tekur Active úr Status glugganum áður en þú velur SEARCH. Þá birtist listi fyrir neðan með öllum flugáætlunum sem þú hefur gert í Cronos.

Ef brottfararstaður (Departure Aerodrome) eða áfangastaður (Destination Aerodrome) eru lendingarstaður/ ZZZZ/ Non ICAO AIRPORT þá setur þú ZZZZ í Departure Aerodrome/ Destination Aerodrome eftir því sem á við, í Route and time planning flipan. Í kjölfarið þarf að fylla út í Item 18 í Equipment and capabilities flipanum. Þar skrifar þú nafn staðar og hnit á staðsetningu. Fremst skrifar þú nafn staðar (setur eitt bil) og svo hnitið xxxxNxxxxxW (án bils), dæmi: DEPLAR 6594N01894W

Ef þú ert að nota snjallsíma/spjaldtölvu er gott að aðlaga síðuna að skjánum. Til að gera það velur þú strikin þrjú uppi í hægra horninu á skjánum og þá hverfur svarta valmyndin og síðan aðlagar sig að skjánum. Ef þú villt fá upp valmyndina velur þú strikin þrjú aftur og valmyndin birtist.

Ástæður geta verið nokkrar.

  1. Hún getur hafa skilað sér, en þú sérð hana ekki. Mögulega þarf að yfirfara og aðlaga aðgangsstýringu þína í flugupplýsingakerfi. Sendu fyrirspurn á [email protected] um málið.
  2. Ef registration vantar í flugáætlun getur verið að flugupplýsingakerfi hundsi hana. Það er mismunandi eftir forritum (öppum) hvar það svæði er svo best er að skoða leiðbeiningar hvers kerfis. Ef þú þarft aðstoð, sendu fyrirspurn á [email protected] og [email protected] um málið.
  3. Ef áætlun er vegna útsýnisflugs og aðeins hluti fluga stofnast þarf að uppfæra reglur um skráningarnúmer þíns flugfars (registration) í flugupplýsingakerfi. Sendu fyrirspurn á [email protected] um málið.

Til upplýsinga: Airport 2020 mun á næstunni fá annað nafn, Veovo Portal.

Senda þarf tölvupóst á [email protected] með beiðni um að flug stofnist ekki. Upplýsingar sem fram þurfa að koma eru: Ástæða þess að flug á ekki að stofnast, ATC kallmerki, Registration og þyngd vélar.

Til upplýsinga: Airport 2020 mun á næstunni fá annað nafn, Veovo Portal.