16.12.2019
Samið við breska fyrirtækið Mace vegna framtíðaruppbyggingar Keflavíkurflugvallar
Isavia hefur gert langtímasamning við breska byggingar- og ráðgjafafyrirtækið Mace um verkefnaumsjón og verkeftirlit vegna fyrirhugaðra framkvæmda við stækkun Keflavíkurflugvallar. Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, og Jason Millett, rekstrarstjóri hjá Mace, undirrituðu samning þess efnis í Flugstöð Leifs Eiríkssonar mánudaginn 16. desember 2019.