Hoppa yfir valmynd
16.9.2022
Forstjóri EUROCONTROL heimsótti Isavia ANS – aðlögunarsamningur Íslands að EUROCONTROL undirritaður

Forstjóri EUROCONTROL heimsótti Isavia ANS – aðlögunarsamningur Íslands að EUROCONTROL undirritaður

Eamonn Brennan, forstjóri Eurocontrol, heimsótti í vikunni höfuðstöðvar Isavia ANS við Reykjavíkurflugvöll, fundaði með Kjartani Briem, framkvæmdastjóra  
Isavia ANS og kynnti sér starfsemi félagsins. Brennan hélt síðan erindi þar sem hann ræddi helstu kosti aðildar Íslands að Eurocontrol, sem er evrópsk milliríkjastofnun sem hefur það markmið að styðja við flug og flugleiðsögu í Evrópu. 

Í ávarpi sínu fagnaði Brennan þeim áfanga að Ísland og og Eurocontrol hefðu fyrr þann sama dag undirritað aðlögunarsamning Íslands að stofnuninni. Það markar áform Íslands um að gerast aðili að stofnuninni frá 1. janúar 2025. Samninginn undirrituðu þeir Brennan og Jón Gunnar Jónsson, forstjóri Samgöngustofu. Ísland tekur þá sæti áheyrnarfulltrúa og getur tekið þátt í starfsemi Eurocontrol að sama marki og aðildarríki. Viðræður um hugsanlega aðild hafa staðið yfir um árabil en aðlögunarsamningurinn var undirritaður að fenginni heimild innviðaráðuneytisins.

Í ávarpi sínu hjá Isavia ANS benti Brennan á að helsti ávinningur aðildar Íslands er full þátttaka í miðlægri flæðisstjórnun flugumferðar fyrir samevrópska loftrýmið og samræmdri krísustjórnun vegna t.d. eldgosa og heimsfaraldra. Þá hefur Ísland og Isavia ANS þar með aðgang að ýmsum kerfum, gagnabönkum og greiningarvinnu hjá Eurocontrol. Hægt er að sækja í tæknilausnir, þjálfun og stuðningi við ýmsa þætti flugmála sem snúa að rekstrarstjórnun flugumferðar og rekstri flugvalla svo eitthvað sé nefnt. 

„Það var ánægjuefni að fá Eamonn Brennan og aðra fulltrúa Eurocontrol í heimsókn til okkar,“ segir Kjartan Briem, framkvæmdastjóri Isavia ANS. „Það verður ánægjulegt að fá að nýta þá tækni og þekkingu sem Eurocontrol býr yfir okkur og Íslandi til hagsbóta. Við hjá Isavia ANS munum á næstu misserum efla okkar samstarf í og við Eurocontrol og verðum tilbúin þegar til fullrar aðildar kemur eftir rúm tvö ár.“  

Við undirritun samningsins sagði Jón Gunnar Jónsson, forstjóri Samgöngustofu að eftir jákvætt samstarf við Eurocontol á undanförnum árum hefði með undirskrift samningsins verið stigið mikilvægt skref. „Vegna landfræðilegrar legu Íslands eru flug og flugleiðsaga einstaklega mikilvæg til grundvallar efnahags og velmegunar þjóðarinnar. Samvinna þjóða á jafningjagrunni stuðlar að uppbyggingu og viðhaldi innviða á sviði flugmála. Með undirritun samningsins hafa stjórnvöld nú staðfest þá fyrirætlun að Ísland gerist fullgildur aðili að Eurocontol.“ 

Eamonn Brennan sagði að hann væri ánægður með að undirritun þessa samning sem er mikilvægt skref í átt að samþættingu Íslands sem 42. aðildarríkis Eurocontrol 1. janúar 2025. „Við höfum unnið náið með Íslandi í mörg ár og fögnum ákvörðun þeirra um að ganga í Eurocontrol og taka á sig öll réttindi og skyldur aðildarríkja okkar. Ísland er vaxandi áfangastaður í Evrópu – með yfir 150 flug daglega að meðaltali nú í sumar - þannig að frekari samþætting þeirra inn í evrópska netið mun nýtast bæði í rekstrarlegum og stefnumótandi tilgangi.“