Hoppa yfir valmynd
14.7.2021
Tvö ísraelsk flugfélög fljúga til Íslands í sumar – fyrsta flug El Al í dag

Tvö ísraelsk flugfélög fljúga til Íslands í sumar – fyrsta flug El Al í dag

Fyrsta flugvél ísraelska flugfélagsins El Al frá Tel Aviv í Ísrael til Íslands lenti á Keflavíkurflugvelli um kl. 14 í dag. Flugvél félagsins var af Boeing 787 Dreamliner gerð. Ferðin í morgun var sú fyrsta hjá félaginu af fimm til Íslands í sumar með hóp ferðafólks frá Ísrael. Flogið verður til 18. ágúst. El Al bætist þannig við 20 flugfélög sem þegar hafa hafið flug til og frá Keflavíkurflugvelli nú í sumar.

Í lok júlí, nánar tiltekið þann 27. júlí næstkomandi, bætist annað ísraelsk flugfélag Arkia í hópinn. Arkia flýgur 5 ferðir með ísraelska ferðahópa til landsins fram til 31. ágúst. Hvorugt flugfélagið hefur flogið áður til Keflavíkurflugvallar og eru þau boðin velkomin til landsins.