14.12.2023
easyJet hefur sölu á flugi til Akureyrar næsta vetur
Breska flugfélagið easyJet hefur hafið sölu á flugferðum til Akureyrarflugvallar frá London Gatwick í október og nóvember á næsta ári. Flugfélagið hóf beint flug til Norðurlands í október síðastliðnum. Sigrún Björk Jakobsdóttir, framkvæmdastjóri Isavia Innanlandsflugvalla, segir að það verði afskaplega gaman að taka á móti easyJet. „Viðbyggingin við flugstöðina verði tilbúin í júlí og við enn betur í stakk búin til að þjónusta flugfélögin og farþega þeirra."