Svæðið

Umferðarmynstur

Umferðarmynstrinu í flugstjórnarsvæðinu er hægt að skipta upp í fimm meginflæði:

  • Flugumferð milli Evrópu og N-Ameríku. Mest flogið eftir leiðum sem flugmenn og flugfélög hafa lagt fram óskir um með tilliti til hagstæðustu háloftavinda. Því geta flugleiðir og umferðarmagn breyst frá degi til dags.
  • Flugumferð milli Mið-Austurlanda og N-Ameríku.
  • Flugumferð milli N-Ameríku og Austurlanda fjær.
  • Millilandaflug frá Íslandi til Evrópu og Norður-Ameríku.
  • Flugumferð í innanlandssvæðinu og milli Íslands, Grænlands og Færeyja.
Alþjóðaflugmálastofnunin (ICAO) hefur falið sjö ríkjum að sjá um flugumferðarþjónustu yfir Norður-Atlantshafi. Þessi lönd eru Bretland, Ísland, Kanada, Noregur, Bandaríkin, Danmörk og Portúgal.
Alþjóðaflugmálastofnunin (ICAO) hefur falið sjö ríkjum að sjá um flugumferðarþjónustu yfir Norður-Atlantshafi. Þessi lönd eru Bretland, Ísland, Kanada, Noregur, Bandaríkin, Danmörk og Portúgal.

Stærsti hluti umferðarinnar liggur milli Evrópu og N-Ameríku. Á daginn fljúga vélar frá Evrópu til Bandaríkjanna og til baka að nóttu til. Þannig verða til tveir helstu álagstímar í flugstjórnarmiðstöðinni, um kl. 14:00 á daginn og um kl. 04:00 að nóttu.