Grab´n Go, Delicatessen (sælkeraverslun) og snjall-sjálfsala tækifæri í norður- og suðurbyggingu
Isavia leitar að öflugum rekstraraðila til að taka þátt í útboði varðandi rekstur á tveimur Grab´n Go verslunum, sælkeraverslun og snjall-sjálfsölum. Grab´n Go verslanirnar verða á tveimur svæðum á Keflavíkurflugvelli. Annars vegar á 2. hæð norðurbyggingar við hlið sælkeraverslunarinnar (Delicatessen) sem einnig er partur af þessu tækifæri og hins vegar á 1. hæð suðurbyggingar (non-Schengen). Snjall-sjálfsalarnir verða á sjö mismunandi staðsetningum innan haftasvæði flugvallarins. Sérstaklega er leitað eftir aðila sem býr yfir mikilli fagmennsku í rekstri og getur brugðist skjótt og vel við breytilegum aðstæðum þar sem flugvöllurinn er flókið rekstrarumhverfi.
Útboðið var auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu. Útboðsgögnin voru gefin út 14. september sl. og útboðsferlið er því hafið.
„Food market“ tækifæri í norður- og suðurbyggingu
Isavia leitar að öflugum rekstraraðila til að taka þátt í útboði varðandi rekstur á veitingasölu á tveimur svæðum á Keflavíkurflugvelli. Annars vegar á 2. hæð norðurbyggingar til austurs (austur vængur) og hins vegar á 1. hæð suðurbyggingar (non-Schengen). Í flóknu rekstrarumhverfi sem flugvöllurinn er, er sérstaklega leitað eftir aðila sem býr yfir mikilli fagmennsku í rekstri og getur brugðist hratt og vel við breytilegum aðstæðum.
Útboðið var auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu. Útboðsgögnin voru gefin út 17. mars sl. og útboðsferlið er því hafið.
Loksins Café & Bar og Bakað
Lagardère, átti hagkvæmasta tilboðið í útboði á rekstri kaffihúsa á Keflavíkurvelli og stefnt er að opnun þeirra á þessu ári. Loksins Café & Bar verður á 2. hæð í suðurbyggingu og Bakað verður á tveimur svæðum; 1. og 2. hæð norðurbyggingar. Sjá nánari upplýsingar.
Tveir nýir veitingastaðir á 2. hæð norðurbyggingar
SSP í Noregi, hluti af alþjóðlega fyrirtækinu SSP Group, átti hagkvæmasta tilboðið í útboði á rekstri tveggja veitingastaða sem opnaðir verða á Keflavíkurflugvelli um vorið 2023.
Fyrirtækið mun reka veitingastað í samstarfi við íslenska fyrirtækið Jómfrúnna og hefja rekstur á bístró-stað undir nafninu Elda þar sem meistarakokkurinn Snorri Victor Gylfason mun sjá um þróun og hönnun á öllum réttum. Sjá nánari upplýsingar.