Hoppa yfir valmynd

Hvað þarf að hafa í huga þegar farið er í gegnum öryggisleit?

Eftir að þú hefur innritað þig ferðu upp á 2. hæð í öryggisleitina en fyrst þarftu að fara í gegnum aðgangsstýringarhlið með því að skanna brottfararspjaldið.

Allur vökvi þarf að vera í sérstökum glærum plastpoka sem hægt er að loka og má hver eining í pokanum vera 100 millilítrar eða minna. Heildarmagnið í pokanum þarf að vera undir einum lítra. Þú getur fengið plastpoka fyrir vökvann áður en þú ferð í gegnum öryggisleit. Farþegar mega hafa rafsígarettur meðferðis og taka þær með í handfarangri (ekki í innrituðum farangri).

Allur innritaður farangur fer í gegnum röntgenskoðun. Ef nauðsyn krefur, gæti þurft að opna töskur til frekari skoðunar. Pakkaðu farangrinum þínum vandlega til að auðvelda skoðun og koma í veg fyrir að innihald detti út. Ekki er tekin ábyrgð á hlutum sem falla úr farangri við þessar aðstæður.

Athugið!
Ef hlutir sem ekki má hafa meðferðis finnast í handfarangri verður þér boðið að innrita hlutina ef þeir uppfylla flugreglur. Ekki er hægt að geyma bannaða hluti á Keflavíkurflugvelli.

Hvað fer í skönnunarbakka?

  • Vökvi: Plastpokinn með vökvunum.
  • Raftæki: Fartölvur, símar, spjaldtölvur, snjallúr og stærri raftæki.
  • Persónulegir hlutir: Belti, yfirhafnir og skór. Mikilvægt er að tæma alla vasa áður en farið er í gegnum öryggishlið. 

Algengar spurningar

Undir vökva flokkast m.a. gel, krem, smyrsl, og úðaefni, hvort sem er í flöskum, þrýstibrúsum, túpum eða öðrum umbúðum. Algengir hlutir sem fólk hefur með sér og flokkast undir vökva eru m.a.: Gos, áfengi, ilmvatn, rakakrem, tannkrem, varagloss, hárlakk, sjampó, sápur, sólarolía, mjúkir ostar ( til dæmis Camembert).

Hver eining umbúða má að hámarki rúma 100 millilítra (1dl) af vökva. Allar umbúðir verða að rúmast í gegnsæjum eins (1) lítra plastpoka sem hægt er að loka með plastrennilás. Hverjum farþega er heimilt að hafa með sér einn poka. Með umbúðum er átt við flöskur, túpur, hylki og annað sem getur innihaldið vökva

Öll lyf í föstu formi, pillur, duft og hylki, eru leyfileg. Lyf í vökvaformi sem þú þarft nauðsynlega að hafa með þér í fluginu eru leyfileg en gætu þurft að fara í vökvaskimunarvél ef umbúðirnar rúma meira en 100 ml. Taka þarf öll lyf í vökvaformi úr töskunni áður en hún fer í gegnumlýsingarvélina.

Já, fæðubótarefni líkt og kreatín og prótein má taka í handfarangri. Sé fæðubótarefnið í vökvaformi þá gilda sömu reglur og með aðra vökva. Magn vökva má ekki vera yfir 100ml.

Það er heimilt sé það ætlað til notkunar í fluginu og magnið ekki umfram það sem eðlilegt getur talist

Heimilt er að taka með linsuvökva í að hámarki 100 ml umbúðum.

Já það er leyfilegt að taka með sléttujárn í handfarangri

Rafsígarettur eru AÐEINS leyfðar í handfarangri, athugið að jafnframt er bannað að hlaða rafsígarettur um borð í flugvélum. Rafsígarettuvökvi  fellur undir hina almennu vökvareglu að enginn vökvi má vera í meira en 100ml íláti og verður að komast í 1L zip lock poka ásamt öðrum vökva sem þú ert að ferðast með.

Barnamatur er leyfilegur svo lengi sem barnið er með í för. Hann gæti þó lent í úrtaksleit og þarf þá að fara í gegnum vökvaskimunarvél. Móðir sem hefur meðferðis brjóstamjólk en barnið er ekki með í för fær undanþágu og fer mjólkin í vökvaskimunarvél í öryggisleitinni. Barnamat og brjóstamjólk þarf að taka upp úr töskunni áður en hún fer í gegnumlýsingarvélina.

Páskaegg eru leyfileg svo lengi sem þau innihalda enga vökva yfir 100ml.

Matur í föstu formi ( t.d. lambalæri, fiskur og hamborgarahryggur) er leyfilegur í handfarangri. Ef þú ert að ferðast með mikið magn af mat væri þægilegast að taka eitthvað af honum upp úr töskunni áður en taskan fer í gegnumlýsingarvélina.

Þrífætur eru leyfilegir en verkfæri sem fylgja þeim þarf að innrita.

Prjónar eru almennt ekki bannaðir í handfarangri. Það er þó mismunandi eftir flugvöllum og ef um tengiflug er að ræða gætu farþegar með prjóna eða aðra oddhvassa hluti fengið athugasemdir vegna þeirra. Flugverndarstarfsmönnum er heimilt, samkvæmt reglugerð, að gera athugasemdir og neita farþegum um að halda áfram með hluti sem þeir telja grunsamlega og ógn geti stafað af.

Almennt má taka harða osta eins og parmesan, cheddar og prima donna í handfarangri. Mjúkir ostar eins og rjómaostur, smurostur og camembert teljast til vökva. Það gilda því sömu reglur um mjúka osta og aðra vökva og gel; hver eining má vera upp að 100ml og ber að setja í glæran rennilásapoka. Athugið að ekki er heimilt að fara með vökva í handfarangri sem keyptur er í verslunum eftir að farið er í gegnum öryggisskoðun í N-Ameríku og öðrum ríkjum utan Evrópska efnahagssvæðisins inn í flugstöð á Íslandi jafnvel þótt hann sé í innsigluðum umbúðum.

Lithíum rafhlöður mega einungis vera í handfarangri.

Líkt og með prjóna eru tjaldhælar ekki almennt bannaðir í handfarangri. Það er þó mismunandi eftir flugvöllum og ef um tengiflug er að ræða gætu farþegar með tjaldhæla eða aðra oddhvassa hluti fengið athugasemdir vegna þeirra. Flugverndarstarfsmönnum er heimilt, samkvæmt reglugerð, að gera athugasemdir og neita farþegum um að halda áfram með hluti sem þeir telja grunsamlega og ógn geti stafað af.