Hoppa yfir valmynd

Tenging í millilandaflug

Hægt að ferðast með rútu til og frá Keflavíkurflugvelli og taka flug innanlands í gegnum Reykjavíkurflugvöll.

RÚTUFERÐIR MILLI REYKJAVÍKURFLUGVALLAR OG KEFLAVÍKURFLUGVALLAR

Daglegar rútuferðir eru milli Keflavíkurflugvallar og Reykjavíkurflugvallar með flugrútu Reykjavik Excursions. Því er auðveldlega hægt að taka flug erlendis frá helstu áfangastöðum á landsbyggðinni með viðkomu í Reykjavík. Hægt er að bóka rútuna og sjá frekari upplýsingar á vefsíðu Reykjavík Excursions.

Bóka flugrútuna


ÁFANGASTAÐIR FRÁ REYKJAVÍKURFLUGVELLI

Reykjavíkurflugvöllur er miðstöð innanlandsflugs á Íslandi. Áætlunarflug er til ellefu áfangastaða innanlands auk þess sem flogið er til nokkurra áfangastaða á Grænlandi og til Færeyja.

Upplýsingar um áfangastaði og bókun