Hoppa yfir valmynd

Spurt og svarað varðandi bílastæðin

Hægt er að greiða fyrir bílastæði á mismunandi vegu.

  • Með appi
    • Parka appinu
    • AutoPay appinu
  • Í greiðsluvélum innan flugvallarsvæðisins
  • Í þjónustuveri KEF Parking á komusvæði flugvallarins
  • Með því að tengja kort við reikning á heimasíðu AutoPay
  • Á vef Isavia eða vef Autopay, Autopay.io


Þú getur alltaf skoðað kvittanirnar þínar á Autopay.io

Við minnum gesti okkar á að nýta sér greiðslumöguleika Autopay áður en ekið er út af bílastæðinu (P1, P2 ), til að komast hjá óþarfa kostnaði. Ef ekki er greitt fyrir stæðið 48 klst. frá útkeyrslu berst reikningur í heimabanka að viðbættu 1.490 kr. þjónustugjaldi.

Verð bókanlegra bílastæða er breytilegt á Keflavíkurflugvelli en því lengri sem fyrirvarinn er því ódýrara er að leggja.

Einnig er hægt er að mæta án þess að bóka stæði og gildir verðskrá viðkomandi bílastæðis.
Sjá verðskrá fyrir Almenn stæði.
Sjá verðskrá fyrir Betri stæði.

Ef þú ert að sækja eða skutla ferðalang, eru fyrstu 15 mínúturnar fríar á skammtímalagningu. Eftir það gildir verðskráin.

Betri stæði

Betri stæði eru merkt P1 og P2. P1 er staðsett við brottfararsal en P2 við komusal. Hægt er að bóka stæði við P1 og hentar það vel fyrir stuttar ferðir.

Ekki er hægt að bóka stæði á P2. Skammtímalagning hentar vel ef sækja á ferðalang eða koma honum í flug. Fyrstu 15 mínúturnar eru fríar. Eftir það gildir verðskráin okkar fyrir Betri stæði. Hægt er að sjá mynd af bílastæðunum hér.

Almenn stæði

Almenn stæði eru merkt P3.

P3 er ódýrasta svæðið okkar og hentar vel fyrir þá sem eru að fara í lengri ferðir. Skoða verðskrá fyrir Almenn stæði.
Hægt er að sjá mynd af bílastæðunum hér.

Úrvalsstæði

Úrvalsstæðin okkar er sú þjónusta sem býður upp á mestu þægindin. Þú leggur bílnum í sérmerkt stæði alveg upp við brottfararsal flugstöðvarinnar. Lyklunum er skilað í lyklabox við brottfararsal og starfsfólk okkar leggur bílnum þínum í öruggt stæði. Við heimkomu mun síðan bíllinn þinn bíða við sama stæði og hann var lagður í upphaflega. Hægt er að sjá mynd af bílastæðunum hér.

Flugfarþegi með stæðiskort fyrir hreyfihamlaða getur farið á eigin bíl og lagt í stæði við flugstöðina. Það eru sérmerkt stæði í skammtímastæðum okkar fyrir farþega með slík stæðiskort. Greiða þarf fyrir þau stæði í samræmi við verðskrá.

Hægt er að nálgast frekari upplýsingar um PRM þjónustu Keflavíkurflugvallar. Skoða nánar.

Betri stæðin okkar, P1 & P2 henta vel til að sækja og skutla farþegum. Fyrstu 15 mínúturnar eru fríar en eftir það gildir verðskráin okkar.

Fjarlægðin frá Almennu stæðunum að flughöfninni eru um það bil 300 metrar.

Fjarlægðin frá Betri stæðunum að flughöfninni eru um það bil 30 metrar.

Þú tryggir þér alltaf betra verð með því að bóka fyrir fram. Verðið er breytilegt en því meiri sem fyrirvarinn er því betra verð stendur þér til boða.

Með því að bóka fyrir fram geturðu líka verið viss um að það sé laust stæði fyrir þig. Við viljum þó taka fram að bílastæðin eru ekki númeruð.

Nei, ekki er nauðsynlegt að setja inn flugnúmer, heldur er það eingöngu gert til þæginda. Hafa ber í huga að sé flugi seinkað eða falli það niður, þarf að afbóka og bóka aftur, viljir þú setja inn nýjan inn og útkeyrslutíma.

Bókanir á KEF parking fara fram hér.

Þú bókar bílastæði hér að ofan í samræmi við þinn flugtíma. Einungis er hægt að bóka eitt bílastæði hverju sinni og bókun verður að vera yfir óslitið tímabil. Við mælum með að þú veljir inn- og útkeyrslu þremur tímum fyrir og eftir áætlaðan brottfarar- og komutíma. Með því lágmarkarðu möguleika á að því að þurfa greiða aukagjald vegna lengri viðverutíma.

Til þess að vernda upplýsingarnar þínar notar vefsíðan okkar staðlaðan SSL dulkóðunarhugbúnað. Þar eru persónuupplýsingarnar þínar dulkóðaðar svo ekki sé hægt að nálgast þær.

Þú veist að þú ert á öruggu svæði síðunnar okkar þegar slóðin á vefsíðuna hefst á https:// og hengilás birtist í ramma vafrans þíns.

Að lokinni bókun er bókunarstaðfesting send í tölvupósti. Bókunarstaðfestingin inniheldur bókunarnúmer og kvittun. Að því loknu áttu frátekið bílastæði hjá okkur. Bílastæðin eru ekki númeruð. Ef þú hefur einhverjar spurningar, ekki hika við að hafa samband við okkur.

Möguleiki er á að staðfestingarpósturinn hafi endað í ruslamöppunni þinni. Við mælum með að leita þar.

Við geymum líka afrit af bókunarstaðfestingunni þinni. Ef þú finnur hana ekki í tölvupóstinum geturðu sent póst á [email protected]

Já það er mögulegt fyrir þig að breyta eða hætta við bókun fram að 2 tímum fyrir bókaðan tíma. Hægt er að breyta um bílastæði, dagsetningu og tíma innkeyrslu og útkeyrslu af bílastæði. Ekki er hægt að breyta bókun eftir að innkeyrsla hefur átt sér stað.

Já, það er hægt að bóka samdægurs. Það er hins vegar ekki skylda að bóka. Þér er að sjálfsögðu frjálst að mæta á bílastæðið án bókunar, en þá gildir verðskrá viðkomandi bílastæðis, en þær er að finna hér og hér.

Ekki er hægt að bóka eftir að keyrt hefur verið inn á stæðið.

Það er mögulegt fyrir þig að breyta eða hætta við bókun allt að fjórum tímum fyrir bókaðan tíma. Einnig er hægt að breyta dagsetningu og tíma innkeyrslu og útkeyrslu af bílastæði.

Ekki er hægt að breyta bókun eftir að innkeyrsla hefur átt sér stað. Ef ekið er inn á öðrum bíl en skráður er í bókun, leggst á 1.990 kr. þjónustugjald.

Enginn lágmarkstími er á bókun á bílastæðum Keflavíkurflugvallar. Hámarkstími bókunar á bílastæðum eru 14 vikur yfir óslitið tímabil.

Já þú getur mætt áður en bókunartíminn hefst. Ef þú keyrir inn á stæðið fyrir bókaðan tíma gildir sá tími. Keyrir þú seinna af bílastæðum en tilgreint er í bókun, gildir sá tími. Ef þú ákveður að framlengja ferðina gildir almennt daggjald þess bílastæðis sem bílnum er lagt á.

Þú getur breytt bókuninni allt að 4 tímum fyrir bókaðan tíma innkeyrslu í gegnum bókunarkerfið á https://www.kefairport.is/. Það er hægt að breyta dagsetningu og tíma innkeyrslu og útkeyrslu af bílastæði.

Yfirgefir þú bílastæði og keyrir inn á það aftur á tímabili bókunar er litið á það sem ný viðskipti sem þú þarft að greiða fyrir samkvæmt gildandi gjaldskrá.

Ef þú keyrir út seinna af bílastæðum en tilgreint er í bókun gildir sá tími. Fyrir tíma utan bókunar skal greiða almennt daggjald þess bílastæðis sem bíl er lagt á.

Ef þú bókar fyrir fram tryggjum við að það sé pláss fyrir bílinn á stæðinu sem þú pantaðir á á þeim tíma sem þú bókaðir. Bílastæðin eru ónúmeruð svo ekki er hægt að bóka pláss í ákveðnu stæði.

Já, þú munt alltaf geta afbókað. Hægt er að breyta eða afpanta bókunina allt að 4 klukkustundum fyrir áætlaðan komutíma (samkvæmt bókun þinni).

Endurgreiðslan verður í kjölfarið gjaldfærð á sama kreditkort og notað var við bókun stæðis. Athugið að endurgreiðsla getur tekið 2-3 virka daga að koma inn á kortið þitt.

Hver er afgreiðslutími KEF parking?

Hjá okkur er opið allan sólarhringinn, allt árið um kring.

Hvað er langt frá bílastæðunum að flughöfninni?

  • Fjarlægðin frá Almennu stæðunum að flughöfninni eru um það bil 300 metrar.
  • Fjarlægðin frá Betri stæðunum að flughöfninni eru um það bil 30 metrar.
  • Fjarlægðin frá Úrvalsstæðunum að flughöfninni eru um það bil 30 metrar.

Er bíllinn minn öruggur?

Myndavélar eru á öllum bílastæðum Isavia auk þess sem starfsfólk okkar fer reglulega um stæðin til að fylgjast með hvort ekki sé allt með felldu.

Hvar nálgast ég skilmála bílastæðaþjónustunnar?

Skilmála bílastæðaþjónustunnar má nálgast hér.

Hvað gerist ef bíllinn minn skemmist á meðan að hann er á stæðunum ykkar?

KEF Parking ber ekki ábyrgð á skemmdum á bílnum, búnaði á eða í bíl á meðan að hann er í geymslu. Sé bíll lagður í Premium stæði, ber KEF Parking ábyrgð á lyklum bifreiða sem fyrirtækið hefur í umsjá sinni. Einnig ber KEF Parking ábyrgð á flutningi bifreiðar til og frá bílastæðunum þar sem hún er geymd.

Eru hæða- og eða þyngdartakmarkanir?

Takmarkanir eru á þyngd og fjölda farþega sem skráð eru á bifreið á almennu bílastæðunum okkar. Bifreiðastæði KEF Parking eru eingöngu ætluð einka- og atvinnubifreiðum með 8 eða færri farþega og vega undir 3.500 kg að skráðri heildarþyngd, nema annað sé sérstaklega tekið fram við innaksturshlið. Skilmála KEF parking má nálgast hér.

Eru sérstök mótorhjólastæði?

Nei. Við bjóðum ekki upp á sér stæði fyrir mótorhjól. Eigendum mótorhjóla er þó að sjálfsögðu heimilt að nota KEF Parking.

Get ég geymt lyklana mína á Keflavíkurflugvelli?

Já. Við bjóðum upp á geymslu á bíllyklum gegn vægu gjaldi. Lyklageymsla er í afgreiðslu bílastæðaþjónustunnar.

Get ég látið þrífa bílinn minn?

Eins og er bjóðum við ekki upp á þrif á bílum á meðan að á geymslu stendur.

Er vildarvinaafsláttur í boði?

Nei, við bjóðum ekki upp á vildarvinaafslátt.

Hvert leita ég ef ég hef frekari spurningar?

Hafirðu einhverjar fleiri spurningar er hægt að hafa samband við okkur á [email protected].

Hvað geri ég ef ég er að sækja fjölskylduna mína og er á stærri bíl en gert er ráð fyrir í skilmálum?

Vinsamlegast hafðu samband við [email protected] ef þú ert að aka inn á bílastæðin á stærri bíl en heimilt er samkvæmt skilmálum.