Hoppa yfir valmynd

Styrkir

STYRKTARUMSÓKNIR

Takk fyrir áhugann á styrk frá Isavia.

Isavia hefur ávallt lagt metnað sinn í að láta gott af sér leiða og hefur veitt styrki til ýmissa málefna. Við höfum lagt áherslu á að styrkja verkefni sem stuðla að sjálfbærni og þróun í umhverfis-, félags-, góðgerðar- og menningarmálum, en þessi mál endurspegla gildi okkar og áherslur í samfélagslegri ábyrgð. Við minnum á að ekki eru veittir styrkir til einstaklinga eða hópa til náms eða íþrótta, né til verkefna sem tengjast pólitískum ágreiningsefnum. 

Vinsamlegast athugið!

Þrátt fyrir vilja okkar til að styðja við fjölbreytt verkefni og aukins fjölda umsókna höfum við ákveðið að loka tímabundið fyrir móttöku nýrra umsókna. Ekki er tekið við umsóknum um styrki að svo stöddu, þetta á við um samfélagssjóðinn, almenna styrkumsókn - lógó og styrktarlínur.

Við þökkum ykkur fyrir skilninginn og áhugann.