Hoppa yfir valmynd
11.4.2024
Drónabannssvæði stækkað - bann í yfir 60 metra hæð til 30. apríl

Drónabannssvæði stækkað - bann í yfir 60 metra hæð til 30. apríl

Vegna eldgoss og nauðsynlegs neyðar- og rannsóknaflugs, hefur Samgöngustofa að beiðni Samhæfingarstöðvar Almannavarna bannað drónaflug yfir 60 metrum yfir jörð og ofar.

Bannið er á svæði sem nær í tveggja sjómílna radius umhverfis eldgosið, miðað er við hnit 635300N02223W, afmarkað sem rauður hringur á mynd. Bannið náði áður til 2 kílómetra radíuss en er núna 2 sjómílur eða um 3,7 kílómetrar í radíus.

Bannið gildir til miðnættis að kvöldi 30. apríl næstkomandi. Undanþágubeiðnir berist samhæfingarstöð Almannavarna í netfangið [email protected] eða í síma 831-1644.