Hoppa yfir valmynd
21.3.2024
Tryggðu bílnum stæði í KEF um páskahátíðina

Tryggðu bílnum stæði í KEF um páskahátíðina

Þau sem hyggjast leggja leið sína í gegnum Keflavíkurflugvöll um páskana eru hvött til að bóka bílastæði við flugstöðina fyrir fram. Allar líkur eru á að langtímastæði við Keflavíkurflugvöll verði fullnýtt í kringum páskahátíðina, enda ein stærsta ferðahelgi Íslendinga. Nýtt bílastæðakerfi var tekið í notkun á síðasta ári sem eykur þægindi í aðkomu við Keflavíkurflugvöll en farþegum er bent á að forðast aukin gjöld með því að greiða fyrir stæðin fyrir komu eða áður en ekið er út af stæðunum.

Aldrei verið þægilegra að leggja við KEF

Nýja bílastæðakerfið er með aðgangsstýringu sem les bílnúmer á bílum þegar ekið er inn og út af þeim. Nýja kerfið hefur gert aðgengi gesta Keflavíkurflugvallar að bílastæðum einfaldara og þægilegra auk þess að bjóða upp á fjölbreyttari greiðsluleiðir með bílastæðaforritum. Þau sem kjósa að nota sjálfsafgreiðslukassa í flugstöðinni geta þó enn nýtt sér þann möguleika.

Forðast aukinn kostnað

Hægt er að bóka bílastæði á vefsíðu Keflavíkurflugvallar og tryggja þannig stæði um páskana en með því að bóka tímanlega bjóðast betri kjör en þegar greitt er við komuna á völlinn. Þeim mun fyrr sem stæðið er bókað, þeim mun betri kjör fást.

Hægt er að greiða með Autopay og einnig með bílastæðaappinu Parka, auk þess sem sjálfsalar eru áfram til staðar inni í flugstöð. Ef engin þessara greiðsluleiða er notuð kemur reikningur samkvæmt gjaldskrá í heimabanka bíleiganda. Farþegum er þó bent á að ef sú leið er valinn bætist 1.490 króna þjónustugjald ofan á rukkunina og er fólki því bent á að forðast þennan aukakostnað með því að nýta þær greiðsluleiðir sem eru í boði. Þá er hægt að borga með greiðsluappi allt að tveimur sólahringum eftir að bílastæði er yfirgefið og komast þannig hjá óþarfa kostnaði.

Töluverð umferð um páskahátíðina

Farþegar eru hvattir til að mæta snemma fyrir flug þar sem töluverð umferð verður um Keflavíkurflugvöll fyrir og um páskahátíðina. Farþegar eru einnig hvattir til að nota sjálfsafgreiðslustöðvar til að innrita sig í flug en yfir 60 stöðvar eru í innritunarsalnum. Opnað er fyrir innritun í flug kl. 03:45 að morgni og öryggisleit er opnuð kl. 04:00. 

Auk bílastæðaþjónustu standa farþegum til boða aðrar samgönguleiðir til og frá Keflavíkurflugvelli. Þar má nefna ferðir með bílaleigubílum, leigubílum, rútum eða strætisvögnum. Hér má finna kort af bílastæðum við Keflavíkurflugvöll og upplýsingar um samgönguþjónustu við flugstöðina.

Með þessu geta farþegar notið ferðalagsins og þess sem flugstöðin hefur upp á að bjóða frekar en að bíða í röð.