Hoppa yfir valmynd

GRÍMSEYJARFLUGVÖLLUR

Grímseyjarflugvöllur er staðsettur á Grímsey, eyju sem staðsett er um 40 kílómetra norður af Íslandi. Flugfélagið Norlandair sinnir áætlunarflugi til og frá Akureyri þrisvar til sjö sinnum í viku. 

 Flugið er í samstarfi við Air Iceland Connect og hægt er að bóka flug til Grímseyjar frá Reykjavík með millilendingu á Akureyri. Nánari upplýsingar er að finna á vefjum flugfélaganna tveggja, www.norlandair.is og www.icelandair.is.

FYRIR FLUG 

Við mælum með því að farþegar mæti tímanlega fyrir flug til þess að forðast biðraðir og svo flugfélagið haldi áætlun. Gott er að mæta á flugvöllinn um það bil 30 mínútum fyrir flug.

Innritun í flug fer fram í flugstöðinni en Air Iceland Connect býður einnig upp á netinnritun á www.icelandair.is. Við minnum farþega á að hafa ávallt persónuskilríki meðferðis.

SAMGÖNGUR 

Flugvöllurinn er í stuttri göngufjarlægð frá íbúabyggðinni í Grímsey. 

HAFA SAMBAND

Ef þig vantar nánari upplýsingar um Grímseyjarflugvöll og starfsemi Isavia á flugvellinum bendum við á netfangið isavia@isavia.is