Isavia rekstraraðili innanlandsflugvalla á Íslandi vinnur náið með sóttvarnalækni, landlæknisembættinu og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra um viðbrögð vegna kórónaveirunnar (COVID-19).
SÝNATAKA Á FLUGVÖLLUM
Ríkisstjórn Íslands hefur ákveðið að þeir sem komi til landsins fari í tvöfalda Covid-19 skimun. Nýjar reglur um tvöfala skimun gilda frá 15/1 til 1/5 2021.
Fyrir komuna til Íslands er einstaklingum skylt að fylla út eyðublað (forskráningu).
Fólk sem ferðast um flugvöllinn er hvatt til að fara að ráðleggingu heilbrigðisyfirvalda hér að neðan.


