Isavia rekstraraðili innanlandsflugvalla á Íslandi vinnur náið með sóttvarnalækni, landlæknisembættinu og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra um viðbrögð vegna kórónaveirunnar (COVID-19).
Frá og með 1. apríl 2021 taka gildi breyttar reglur stjórnvalda á landamærum vegna Covid-19. Meðal þeirra eru reglur um að ferðamenn sem koma frá skilgreindum áhættusvæðum (dökkrauðum löndum með nýgengi smita yfir 500) skuli dvelja í sóttkví eða einangrun í sóttvarnarhúsi milli fyrri og síðari sýnatöku.
Nánar um nýjar reglur á vef Stjórnarráðs Íslands og á Covid.is.
Spurt og svarað um nýjar reglur á vef Stjórnarráðs Íslands.
SÝNATAKA Á FLUGVÖLLUM
Ríkisstjórn Íslands hefur ákveðið að þeir sem komi til landsins fari í tvöfalda Covid-19 skimun.
Fyrir komuna til Íslands er einstaklingum skylt að fylla út eyðublað (forskráningu).
Fólk sem ferðast um flugvöllinn er hvatt til að fara að ráðleggingu heilbrigðisyfirvalda hér að neðan.


