Hoppa yfir valmynd

Hvernig greiði ég fyrir stæði?

  1. Þú keyrir inn á stæðið og myndavélakerfið tekur mynd af bílnúmerinu.
  2. Við brottför er keyrt út af stæðinu og myndavél tekur aftur mynd af bílnúmerinu.
  3. Ef þú ert með reikning hjá Autopay og skráðar kortaupplýsingar þarftu ekkert að gera þar sem skuldfært er sjálfvirkt af kortinu.
  4. Ef þú ert ekki með reikning og skráð kort hjá Autopay þarftu að fara hér inn og borga stöðugjaldið.
  5. Ef ekki er greitt fyrir stæðið 48 klst. frá útkeyrslu berst reikningur í heimabankann þinn að viðbættu 1.490 kr. þjónustugjaldi.



Greiða fyrir stæði

Ef þú ert skráð/ur viðskiptavinur hjá Autopay geturðu keyrt beint út.
Ef þú ert að nýta þér þjónustuna í fyrsta sinn geturðu greitt fyrir stæðið hér.

Greiða núna

Sendu okkur endilega fyrirspurn ef einhverjar spurningar vakna.

Senda póst

Spurt og svarað

Autopay einfaldar ferlið við lagninu. Þú einfaldlega ekur inn á bílastæðið og leggur bílnum. Myndavél á svæðinu les bílnúmerið og telur tímann sem bílnum er lagt á svæðinu. Kerfið greiðir svo sjálfkrafa fyrir þjónustuna. Hafa ber í huga að þessi leið er eingöngu í boði ef notandi hefur stofnað Autopay reikning og skráð kortaupplýsingar sínar.

Eingöngu er hægt að greiða fyrir stæði í gegnum snjallforrit Autopay og gegnum vefsíðu Autopay. Fyrstu 15 mínúturnar á sólarhring eru fríar. Eftir það er rukkað fyrir bílastæðagjald samkvæmt gjaldskrá.

Hægt er að greiða á netinu innan 48 klukkustunda eftir að lagningu er lokið. Bílnúmer bílsins er þá skráð inn og upp kemur greiðslusíða þar sem gengið er frá greiðslu.

Hafa ber í huga að 48 klukkustundum liðnum verður ekki lengur hægt að greiða í gegnum Autopay og viðkomandi fær sendan greiðsluseðil í heimabankann sinn.

1.490 kr. þjónustugjaldi er bætt ofan á bílastæðagjaldið.

Já það er hægt að greiða í heimabanka. Ef ekki er greitt innan 48 klukkustunda verður greiðsluseðill sendur í heimabankann. Allir reikningar sem sendir eru í heimabanka er hægt að nálgast í rafrænum skjölum.

1.490 kr. þjónustugjaldi er bætt ofan á bílastæðagjaldið.

Það er auðvelt að leggja bílnum með Autopay. Þú ekur inn á bílastæðið, sinnir þínum erindum og ekur síðan út. Enginn pappír, engir QR kóðar og engar biðraðir.

Dagar Verð Verð á dag
1 dagur 1.750 1.750
2 dagar 3.500 1.750
3 dagar 5.250 1.750
4 dagar 7.000 1.750
5 dagar 8.750 1.750
6 dagar 10.500 1.750
7 dagar 12.250 1.750
8 dagar 13.600 1.350
9 dagar 14.950 1.350
10 dagar 16.300 1.350
11 dagar 17.650 1.350
12 dagar 19.000 1.350
13 dagar 20.350 1.350
14 dagar 21.700 1.350
15 dagar 22.900 1.200
16 dagar 24.100 1.200
17 dagar 25.300 1.200
18 dagar 26.500 1.200
19 dagar 27.700 1.200
20 dagar 28.900 1.200
21 dagur 30.100 1.200
Hver klukkutími 350 kr.