Hoppa yfir valmynd

Farangur

Við mælum með að þú kynnir þér reglur um farangur áður en þú ferð í flug.

REGLUR UM FARANGUR

Reglur um farangur í innanlandsflugi eru mismunandi eftir flugfélögum. Farþegum er bent á að kynna sér reglur viðeigandi flugfélags.

Eftirfarandi er ekki heimilt að hafa með sér í handfarangri:

Óleyfilegur farangur:

Lýsing:


Skotvopn:

Vopn eða tæki sem hægt er með sprengikrafti, samanþjöppuðu lofti eða á annan sambærilegan hátt að skjóta úr kúlum, höglum eða öðrum skeytum. Undir skotvopn heyra líka svokallaðar startbyssur og neyðarskotbyssur.


Bitvopn og stunguvopn:

Allir hnífar, s.s. veiðihnífar, dúkahnífar, ýmis egg- eða stunguvopn sem notuð eru við bardagaíþróttir, sverð og rýtingar.


Kylfur:

Allar kylfur, þ.m.t. hornaboltakylfur, kylfur sem notaðar eru við bardagaíþróttir, lögreglukylfur, golfkylfur og ísknattleikskylfur.


Skotfæri, sprengiefni, eldfim og tærandi efni:

Hvers konar skot eða skeyti sem gerð eru til að skjóta úr skotvopnum, flugeldar, reyk- og/eða hvellsprengjur, ýmiskonar skrauteldar, eldfimir vökvar, gas og öll tærandi efni.


Sjálfsvarnarvopn:

Táragasefni (mace) og rafmagnskylfur af öllum tegundum (stunning/shocking devices).


Önnur tæki og tól:

Ísnálar, rakhnífar, oddhvöss skæri og aðrir hlutir sem hægt er að nota sem vopn.


Eftirlíkingar:

Allar eftirlíkingar vopna, skotfæra, sprengiefna og/eða annarra hluta sem líkjast vopnum.