![](/media/1/untitled-7016.jpg?width=963&height=420&mode=crop&anchor=)
Skipulagsnefnd Keflavíkurflugvallar fer með afgreiðslu skipulagsmála á sveitarstjórnarstigi.
Isavia ohf kostar og annast gerð skipulagstillagna og leggur fyrir skipulagsnefnd Keflavíkurflugvallar til afgreiðslu. Isavia ohf. fer með framkvæmdir og þjónustu á sveitarstjórnarstigi er varðar gatnagerð, gerð og rekstur vatnsveitu- og fráveitukerfa á flugþjónustusvæðinu.