Hoppa yfir valmynd

Aðgangur og öryggi

AÐGANGUR AÐ KEFLAVÍKURFLUGVELLI 

Allir sem starfa á Keflavíkurflugvelli þurfa að vera með aðgangsheimild (passa).

Aðgangsheimildin segir til um á hvaða svæði starfsmaðurinn má vera ásamt sérstökum heimildum viðkomandi. Aðgangsheimildin sýnir mynd og nafn starfsmannsins, nafn vinnuveitanda og gildistíma aðgangsheimildar.

Passaútgáfa Isavia veitir aðgangsheimildir fyrir einstaklinga og ökutæki. Passaútgáfa Isavia er að finna í viðbyggingu við Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Nánari staðsetningu má sjá hér til hliðar.

Allir starfsmenn sem fá aðgangsheimild að Keflavíkurflugvelli þurfa að standast bakgrunnsskoðun ríkislögreglustjóra vegna aðgangs að haftasvæði flugverndar. Þeir eru jafnframt í virkri vöktun lögreglu á meðan þeir starfa á flugvellinum.

Hér til hliðar má finna umsóknareyðublöð og aðrar nauðsynlegar upplýsingar.

Hér má lesa aðgangsreglur Keflavíkurflugvallar