
101% endurheimt á Keflavíkurflugvelli frá 2019
Farþegafjöldi um Keflavíkurflugvöll í júlímánuði nú í ár var meiri en í júlí árið 2019. 852.431 þúsund farþegar fóru um flugvöllinn og hefur Keflavíkurflugvöllur því náð 101% endurheimt samanborið við júlí fyrir þremur árum, eða fyrir heimsfaraldurinn.
Stefna flugvallarins, sem sett var fram árið 2021, hefur verið að bæta tengingar og auka flugleiðir til og frá Keflavíkurflugvelli í samstarfi við ólík flugfélög og hafa þær áætlanir farið fram úr björtustu vonum. Í júlí mánuði flugu bæði innlend og erlend flugfélög á 77 áfangastaði víða um heim og voru 78,2% af heildar brottfararfarþegum erlendir.
„Það er frábært að sjá hvað flugfélögin voru tilbúin að auka hratt framboð á flugi til og frá Íslandi. Nú er mikilvægt að halda áfram þeirri góðu vinnu sem unnið hefur verið í uppbyggingu á Keflavíkurflugvelli til að mæta eftirspurninni sem er vaxandi,“ segir Guðmundur Daði Rúnarsson, framkvæmdastjóri viðskipta og þróunnar hjá Isavia.
Framkvæmdir hafa staðið yfir á Keflavíkurflugvelli meðal annars vegna byggingu 1200 metra akbrautar fyrir flugvélar og byggingar á nýrri austurálmu sem er rúmlega 20.000 fermetrar að stærð sem mun bæta upplifun farþega og flugfélaga frá 2024. Á sama tíma hafa bæði Icelandair og Play tilkynnt stækkun flugflota á næstu misserum og því mikil þörf á að framkvæmdir á flugvellinum haldi áfram
„Þrátt fyrir að rekstur flugvallarins hafi gengið almennt vel yfir sumarmánuðina biðjum við farþega um að sýna þolinmæði og biðlund. Á sama tíma vill Isavia þakka starfsfólki á flugvellinum, flugfélögum og samstarfsaðilum fyrir þeirra mikilvæga framlag að koma öllu í rekstur á ný á flugvellinum,“ segir Guðmundur Daði.