Hoppa yfir valmynd
13.12.2023
522 þúsund gestir á Keflavíkurflugvelli í nóvember

522 þúsund gestir á Keflavíkurflugvelli í nóvember

Umferð um Keflavíkurflugvöll var mest mesta móti í nóvember miðað við árstímann. Alls lögðu 521.993 gestir leið sína um flugvöllinn í nóvember, sem er aukning upp á um 18,2% frá sama tíma árið 2022. Mest var að gera þann 5. nóvember, þegar 23.840 gestir fóru um flugvöllinn.

Flogið var til 63 áfangastaða og voru þeir vinsælustu London, Kaupmannahöfn, Manchester, Amsterdam og Boston.

Brottfarir Íslendinga voru um 43 þúsund.

Samkvæmt talningu frá Ferðamálastofu voru brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll um 150 þúsund í nýliðnum mánuði. Um er að ræða álíka margar brottfarir og mældust í nóvember metárið 2018.

Flestar brottfarir í nóvember voru tilkomnar vegna Breta eða um 24,2% en í öðru sæti voru brottfarir Bandaríkjamanna, eða 20,5% af heild. Þar á eftir fylgdu Pólverjar, Ítalir og Þjóðverjar.

Við hlökkum til að sjá ykkur á Keflavíkurflugvelli, sem nú er kominn í jólabúning!