Hoppa yfir valmynd
11.5.2022
5,7 milljónir farþega um Keflavíkurflugvöll í ár - 79% endurheimt frá 2019

5,7 milljónir farþega um Keflavíkurflugvöll í ár - 79% endurheimt frá 2019

  • Í farþegaspá Isavia fyrir árið 2022 er gert ráð fyrir að heildarfjöldi farþega sem fara um Keflavíkurflugvöll verði 5,7 milljónir
  • Spáin er sú fyrsta sem gerð er síðan Covid-19 heimsfaraldurinn skall á og er unnin eins og áður í samvinnu við notendur Keflavíkurflugvallar
  • Spáð er að í ár verði farþegar 79% af þeim fjölda sem fór um völlinn árið 2019
  • Áætlað er að tengifarþegar verði tæp 73% af því sem var árið 2019

Spá Isavia um fjölda farþega sem áætlað er að fari um Keflavíkurflugvöll það sem eftir er af árinu 2022 er komin út.

Samkvæmt farþegaspánni er gert ráð fyrir að farþegar sem fara um Keflavíkurflugvöll 2022 verði rétt rúmlega 5,7 milljónir, sem er um 79% af þeim fjölda sem fór um völlinn árið 2019, þ.e. fyrir Covid-19 heimsfaraldurinn, og 162% fleiri farþegar en fóru um völlinn í fyrra. Gert er ráð fyrir að endurheimtin í fjölda farþega yfir hásumarið og fram á haust verði 93% í júlí, 91% í ágúst og 98% í september. Þá verði farþegar sem fara um Keflavíkurflugvöll í októbermánuði í ár nærri 700 fleiri en sama mánuð 2019.

Gert er ráð fyrir að fjöldi skiptifarþega nærri tvöfaldist nú í maí og aukist jafnt og þétt fram á  haust. Tvö félög bjóða nú upp á tengiflug milli Evrópu og Norður-Ameríku um Keflavíkurflugvöll.  Auk Icelandair hóf Play flug vestur um haf í apríl. Farþegaspáin gerir ráð fyrir að tengifarþegar verði tæplega 1,5 milljónir fyrir allt árið 2022 en þeir voru rétt rúmar 2 milljónir 2019 og 350 þúsund í fyrra.

„Isavia hefur ekki gefið út farþegaspá frá því fyrir Covid-19 vegna þeirrar miklu óvissu sem ríkt hefur,“ segir Grétar Már Garðarsson, forstöðumaður flugfélaga og leiðaþróunar hjá Isavia. „Endurheimtin er hraðari en við bjuggumst við fyrr á þessu ári,“ segir Grétar. „Samkvæmt farþegaforsendum sem við gerðum í byrjun febrúar var útlit fyrir að heildarfjöldi farþega um Keflavíkurflugvöll yrði tæpar 4,6 milljónir. Nú hefur sú tala hækkað um ríflega eina milljón.“

Flugfélögin sem fljúga til og frá Keflavíkurflugvelli í sumar verða 24 talsins samanborið við 25 flugfélög sumarið 2019. Þá eru áfangastaðirnir nú í sumar 75 en voru 80 sumarmánuðina 2019. Grétar segir að Isavia geri ráð fyrir að fjöldi ferðamanna á Íslandi í ár verið á bilinu 1,4-1,5 milljónir. Fyrri forsendur gerðu ráð fyrir 1,2 milljón farþegum.

„Heimurinn er að opnast eftir heimsfaraldurinn og ferðaþjónustan að vakna eftir erfitt tímabil,“ segir Grétar. „Við hjá Isavia erum bjartsýn fyrir sumarið og á framtíðina. Árið 2022 endurheimtum við ferðagleðina. Þetta verður líka eitt mesta framkvæmdaár í sögu Keflavíkurflugvallar. Við erum að stækka og bæta flugstöðina til að geta enn betur tekið á móti ferðafólki til framtíðar.“