![Aðflugið að Ísafjarðarflugvelli eitt það fallegasta í Evrópu](/media/1/isafjordur-4-1.jpg)
Aðflugið að Ísafjarðarflugvelli eitt það fallegasta í Evrópu
Vefurinn PrivateFly.com setur aðflugið að Ísafjarðarflugvelli í flokk þeirra fallegustu í Evrópu. Tólf aðrir evrópskir flugvellir komust á lista í vali um fallegasta aðflugið, en Ísafjarðarflugvöllur er eini flugvöllurinn á Norðurlöndunum sem komst á listann. Hægt er að kjósa um fallegasta aðflugið til 15. mars næstkomandi.
![Flugtak frá Ísafjarðarflugvelli](/media/1/isafjordur-5-1.jpg)
Flugvallarstæði Ísafjarðarflugvallar hefur lengi verið talið einstakt og hefur völlurinn oft komist á lista erlendra vefja yfir áhugaverð aðflug. Flugvöllurinn er enda staðsettur við sjó umkringdur háum og bröttum fjöllum í fremur þröngum firði. Við aðflugið er flogið inn Skutulsfjörð, meðfram fjallshlíð yfir byggðina á Ísafirði og tekin 180 gráðu beygja til vinstri í fjarðarbotninum áður en lent er á flugbrautinni hinum megin fjarðarins. Við réttar veðuraðstæður er einnig hægt að lenda á hinum brautarendanum. Aðflugið úr þeirri átt krefst þess ekki að flogið sé meðfram fjöllum að fjarðarbotni áður en lent er og þykir mörgum það því ekki jafn mikilfenglegt.
![Lendingarbraut á ísafirði](/media/1/isafjordur-3-1.jpg)
Lesendur PrivateFly.com velja á hverju ári fallegasta aðflugið í sex heimshlutum. Nú hafa 74 flugvellir verið valdir á úrtakslista og er Ísafjarðarflugvöllur einn af þrettán evrópskum flugvöllum sem komust á listann. Um er að ræða jafnt stóra sem smáa flugvelli og mjög fjölbreytt flugvallastæði. Á listanum eru meðal annars flugvellir í borgarlandslagi, eyjaflugvellir, vellir með aðflug frá strönd og vellir sem staðsettir eru á fjallstoppi.
Listanum er skipt upp í sex heimshluta:
- Evrópu
- Norður-Ameríku
- Suður-Ameríku, Mið-Ameríku og Karíbahaf
- Asíu
- Afríku og Miðausturlönd
- Ástralasíu
Kosningin er opin öllum á vefnum PrivateFly.com og hægt er að kjósa til 15. mars 2020. Hér er að finna hlekk á kosninguna.
Að neðan eru myndbönd sem finna má á Youtube af aðflugi að báðum brautarendum Ísafjarðarflugvallar.